Last fær KA fyrir „ruslulegt geymslusvæði norðan KA heimilisins við miklar umferðagötur“. Svo skrifar Akureyringur í bréfi til blaðsins
Lof fær N4 fyrir að vera öðruvísi en aðrir miðlar. Svo mælir kona á Húsavík sem hafði samband við blaðið og vildi koma á framfæri þakklæti sínu.
Lof fá Hörður Benónýsson og félagar í Eflingu í Reykjadal vegna enn eins leikritsins þar í sveit. Hörður er höfundur verksins og þykir mikil menningarbót að þessu framtaki hans og leikfélagsins á svæðinu að sögn Þingeyings sem hafði samband við blaðið.
Lof fær hópurinn sem stendur að framkvæmdum við Vaðlaheiðargöng, segir karl sem hringdi í blaðið. Nú styttist í að fjórðungur ganganna hafi verið grafinn. Á heimasíðunni vadlaheidi.is segir að mannskapurinn hafi slípast vel saman en í göngunum er unnið alla daga vikunar á 12 klst vöktum dag- og næturvakt. Þrjár vaktir skipta á milli sín vinnunni og er unnið í 10 daga og síðan er 5 daga frí.
Lof fá láglaunahópar sem hafa staðið í lappirnar og neita að horfa lengur framhjá misskiptingunni sem orðið hefur í samfélaginu. Þetta segir karl í Þorpinu á Akureyri. Hann segir „til skammar“ að þeir sem vinni við að hlúa að manneskjum, mennta þær, gæta, hjúkra og uppfræða séu lítils metnar á sama tíma og þeir sem fáist við útreikninga á dauðum hlutum fleyti rjómann.
Last fá fréttamenn sem vitna til skoðanakannana án þess að geta svörunar eða aðferðafræði. Lítið er að marka könnun þar sem aðeins 20-30% hafa svarað. Ýmsar aðrar breytur þarf að skoða áður en fjölmiðlar leggja mat á trúverðugleika frétta, segir félagsfræðingur sem ræddi við blaðið. Telur hann mikilvægt að fjölmiðlar vinni þá sérfræðivinnu sem þurfi til að túlka niðurstöður fyrir almenning, því bjargir fólks séu mismunandi til að skilja réttmæti og áreiðanleika niðurstaðna…


