Stella Stefánsdóttir sem ótrúlega hátt hlutfall Akureyringa þekkir betur undir nafninu Amma Stella verður jarðsungin við Akureyrarkirkju í dag en hún lést á Landspítalanum 27. janúar sl. Stella átti fleiri afkomendur á lífi en nokkur annar íslendingur en lifandi afkomendur hennar teljast 190; 14 börn, 52 barnabörn, 107 langömmubörn og 17 langalangömmubörn.
Stella bjó lengst af í Gilinu, Lækjargötu 22a, með manni sínum Gunnari Konráðssyni, eða afa Nunna. Hún starfaði sem vökukona við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri frá 1956 og sjúkraliði á árunum 1967-90. Einnig var Stella virk í félagsmálum og starfaði með kvenfélaginu Hlíf, Mæðrastyrksnefnd og sat um skeið í stjórn Sjúkraliðafélagsins á Akureyri.
Þrátt fyrir fjölda afkomenda hélt Stella góðum tengslum við þá. „Engin afmælisdagur er fullkomnaður fyrr en Amma Stella hefur hringt og sungið afmælissönginn (hún hringdi meira að segja einu sinni í skakkt númer en þá vildi svo skemmtilega til að alls ókunnug konan sem svaraði átti einmitt afmæli),“ sagði einn afkomandi Stellu í umfjöllun um hana nýlega.







