Ef svo fer sem horfir með má gera ráð fyrir að halli á rekstri Sjúkrahússins í árslok verði á bilinu 130-150 milljónir. Þetta kemur fram í grein sem Vignir Sveinsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs FSA skrifar á vef stofnunarinnar. Fram kemur að væntingar séu um að einhverjar leiðréttingar verði gerðar á fjárframlögum stofnunarinnar í fjáraukalögum ársins.
Starfsemi hefur að jafnaði dregist lítillega saman en álag á slysa- og bráðamóttöku hefur aukist töluvert. Almenn rekstrargjöld í heild eru samkvæmt áætlun og sértekjur eru nokkru hærri en gert var ráð fyrir.
Hallinn er nær eingöngu vegna launaliða og eru helstu ástæður að mati Vignis þrjár:
- Stofnanasamningar hafa í sumum tilfellum kostað meira en sem nemur viðbótarfjárveitingu sem fékkst vegna s.k. jafnlaunaátaks.
- Yfirvinna, einkum útköll, hefur farið verulega framúr áætlun en nokkur ávinningur hefur náðst á síðari hluta ársins í að fækka þeim á ný.
- Veikindi hafa aukist og launagreiðslur vegna þeirra hækkað. Hlutfall veikindadaga í lok september var 5,02% á móti 4,61% á síðasta ári.




























