Verðlagshækkanir ögrun við íslenskt launafólk

Verðlagshækkanir ögrun við íslenskt launafólk

Þingfulltrúar á 28. þingi LÍV

„Stöðugleika verður ekki náð á Íslandi með því að launþegar stilli kröfum sínum í hóf. Fleira þarf að koma til. Stjórnvöld verða að leggja fram trúverðuga efnahagsstefnu sem tryggir stöðugt gengi og verðlag. Þá hafa verðlagshækkanir sem átt hafa sér stað að undanförnu aukið á óstöðugleika og þær hækkanir sem lesa má út úr fjárhagsáætlunum sveitarfélaga vegna ársins 2014, vekja ekki vonir um að vilji sé til þess að koma á stöðugleika. Þessar hækkanir eru ögrun við íslenskt launafólk sem hefur tekið á sig ómældar byrðar frá efnahagshruninu 2008.“ Þetta er meðal þess sem kemur fram í ályktun sem samþykkt var á þingi Landssamband íslenska verzlunarmanna sem haldið var á Akureyri um liðna helgi.

Kannanir sem gerðar hafa verið meðal verslunar- og skrifstofufólks sýna að meirihluti þeirra leggur áherslu á aukinn kaupmátt og hækkun lægstu launa. Sambandið telur að takist að koma á stöðugleika megi ná markmiðum um aukinn kaupmátt með minni launabreytingum. „Eigi árangur að nást í að koma á stöðugleika sem leggur grunn að aukinni hagsæld verða allir að róa í sömu átt. Atvinnulíf og stjórnvöld verða að leggja sitt að mörkum. Íslenskt launafók verður ekki eitt gert ábyrgt fyrir því að koma á stöðugleika,“ segir einnig í ályktuninni.

Sambandið sendi einnig frá sér ályktun varðandi menntunarmál fólks í þjónustu- og verslunarstörfum og leggur til að nám í verslunar- og þjónustugreinum leiði til sérhæfðs prófs og viðurkenningar af svipuðum toga og iðnmenntun. „LÍV hvetur atvinnulífið til að sýna í verki vilja sinn til að efla menntun starfsmanna í verslun og þjónustu með því að taka undir kröfur LÍV í starfsmenntamálum eins og þær eru settar fram í kröfugerð sambandsins. Í kröfugerðinni er áhersla lögð á að starfsmenntun verslunar- og þjónustufólks sé markviss, í takt við þarfir atvinnulífsins og metin til launa,“ segir þar einnig.

-SBS

„Lestraramma“. Mynd úr safni

Lestrarömmur í Síðuskóla

Nýlega komu fyrstu „lestrarömmurnar“ í Síðuskóla og aðstoðuðu börn í 2.-4. bekk við lestur. Um er að ræða tilraunaverkefni en síðastliðinn vetur ræddu deildarstjórar skólans við fulltrúa eldri borgara ... Lesa »

Mynd frá tónleikum Hymnodíu á Siglufirði. Mynd: Jón Hrólfur Baldursson

Aukatónleikar Hymnodíu

Félagarnir í Kammerkórnum Hymnodíu voru ekki aftarlega í röðinni þegar ímyndunarafli og skapandi gáfum var útdeilt eins og margir hafa tekið eftir og nú síðast á svokölluðum Fjölbragðatónleikum en ... Lesa »

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar

Rannsóknir Íslenskrar erfðagreiningar kynntar

Á laugardag, 16. nóvember, kl 14, bjóða Háskólinn á Akureyri og Íslensk erfðagreining almenningi til opins fræðslufundar í hátíðarsal Háskólans á Akureyri, þar sem rannsóknir Íslenskrar ... Lesa »

Grímsey. Mynd: Friðþjófur Helgason.

Samkeppni um kennileiti fyrir heimskautsbauginn í Grímsey

Einni milljón króna verður veitt í verðlaun fyrir bestu hugmynd að nýju kennileiti fyrir heimskautsbauginn í Grímsey. Það er Akureyrarbær, í samvinnu við Hönnunarmiðstöð Íslands, sem efnir til ... Lesa »

Mynd af Jóni Sveinssyni, Nonna, tekin 1930

Notalegt í Nonnahúsi um helgina

Það verður sérstaklega notalegt í Nonnahúsi laugardaginn 16. nóvember kl 14-16 þar sem fæðingardegi barnabókahöfundarins og heiðursborgara Akureyrar Jóns Sveinssonar, Nonna, verður fagnað með ... Lesa »

mafama

MAFAMA á Backpackers

Lifandi tónlist hefur að undanförnu verið leikin á miðvikudögum á Akureyri Backpackers. Á morgun er komið að þríeykinu í MAFAMA að leika rafpopp. Strákarnir í MAFAMA léku síðast í Hofi við góðan ... Lesa »

Ásgerður

Ásgerður sigraði ræðukeppni á ensku

Ásgerður Ólöf Ásgeirsdóttir nemandi á fjórða ári í MA sigraði ræðukeppni sem fram fór á ensku. Keppnin er haldin er á vegum ESU (English Speaking Union) og FEKÍ (Félag enskukennarafélag á ... Lesa »

Þævingsfærð og óveður var á Grenivíkurvegi í dag og Víkurskarðið lokað um tíma. Mynd úr safni

Strætó valt á Húsavík - kalla þurfti út snjóruðningstæki til að opna Víkurskarðið

Strætisvagn á leið 79 til Húsavíkur valt á hliðina og út af veginum rétt fyrir klukkan 10 í morgun. Mikil hálka og krapi var á veginum þegar slysið varð og töluverður vindur. Einn farþegi var um borð, ... Lesa »

Börn á Hólmasól. Mynd af vefsíðu skólans

Mikill áhugi á Hjallastefnugrunnskóla á Akureyri

Nefnd á vegum foreldrafélags Hólmasólar ætlar að ræða við bæjaryfirvöld og forsvarsmenn Hjallastefnunnar til að kanna hvort raunverulegur möguleiki sé ái því að Hjallastefnugrunnskóli geti tekið til ... Lesa »

Hljómsveitin Bloodgroup spilar í Hofi á fimmtudagskvöld ásamt Akureyrsku hljómsveitinni Nolam

Bloodgroup og Nolem í Hofi

Hljómsveitin Bloodgroup mun koma fram á þriðju útgáfu tónleikaraðarinnar Sérfræðingar að Sunnan, en hún fer fram í menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Tónleikarnir fara fram fimmtudaginn 14. nóvember og ... Lesa »

Þingfulltrúar á 28. þingi LÍV

Verðlagshækkanir ögrun við íslenskt launafólk

„Stöðugleika verður ekki náð á Íslandi með því að launþegar stilli kröfum sínum í hóf. Fleira þarf að koma til. Stjórnvöld verða að leggja fram trúverðuga efnahagsstefnu sem tryggir stöðugt gengi og ... Lesa »

Ljótu hálfvitarnir verða á Græna hattinum um helgina

Síðustu hálfvitatónleikar vetrarins

Ljótu hálfvitarnir fengu ekki miða á landsleikinn, enda kvöldsvæfir menn og klaufar á tölvu. Til að deyfa vonbrigðin hyggjast þeir brjótast norður til Akureyrar föstudaginn 15. nóvember og leika og ... Lesa »

Hildur Eir Bolladóttir. Mynd: Guðrún Hrönn

Að bulla með valdi

Ég hef velt því svolítið fyrir mér undanfarið, sérstaklega eftir spjall við góða vinkonu sem hefur alltaf verið ófeimin við að benda á það sem betur mætti fara í jafnréttismálum, hvort ég hafi sjálf ... Lesa »

Saga Travel fékk nýsköpunarverðlaun SAF

Saga Travel hlaut nýsköpunarverðlaun SAF 2013

SAF – Samtök ferðaþjónustunnar veittu í dag nýsköpunarverðlaun 2013 á Center Hótel í Reykjavík. Það var fyrirtækið SAGA TRAVEL sem hlaut verðlaunin en þetta er í tíunda sinn sem samtökin veita ... Lesa »

Á Kjalvegi 17. september sl.

Þrýst á um endurbætur á Kjalvegi

Forsvarsmenn þriggja sveitarfélaga og sjö ferðaþjónustuaðila hafa sent frá sér yfirlýsingu um að óviðunandi sé að ekki sé gert ráð fyrir fjárveitingu til endurbóta eða uppbyggingar á Kjalvegi í ... Lesa »

Einar Mikael töframaður býður börnum frítt á töfranámskeið 1. des

Einar Mikael býður frítt á sýningu og námskeið

Töframaðurinn Einar Mikael býður öllum krökkum á Akureyri á fría sýningu og námskeið sunnudaginn 1. desember en sýning sem hann ætlaði að halda í Sjallanum sl. föstudag féll niður. „Mér fannst ... Lesa »

Vignir Sveinsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs FSA

Launagreiðslur FSA yfir áætlun

Ef svo fer sem horfir með má gera ráð fyrir að halli á rekstri Sjúkrahússins í árslok verði á bilinu 130-150 milljónir. Þetta kemur fram í grein sem Vignir Sveinsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs ... Lesa »

Fjölskyldan ætti hjálpast að við heimilisstörfin

Tíminn og barnið

Það er ákveðin þversögn í stöðu barna í dag. Annars vegar eru flest nútímabörn óskabörn foreldra sinna en á hinn bóginn er ekkert pláss fyrir þau í samfélagi þar sem allt snýst um peningar og neyslu. ... Lesa »

Benedikt Sigurðarson

Almenningur á heilbrigðisþjónustuna

Frá því 1991 hefur staðið nær samfellt harðinda og niðurskurðartímabil í heilbrigðisþjónustunni – með örfáum og staðbundnum undantekningum. Lengi vel stóðu sveitarstjórnarmenn og einstakir ... Lesa »

Úr vinnslusal ÚA á Akureyri. Mynd: Hilmar Friðjónsson

ÚA hagnaðist um 1,4 milljarða

Útgerðarfélag Akureyrar sem nú er dótturfélag Samherja hagnaðist um tæplega 1,4 milljarða króna á árinu 2012. Gert er upp í evrum og nam hagnaðurinn 8,9 milljónir evra. Ákveðið var að greiða helming ... Lesa »

Háværir háskólanemar í snjóstríði. Mynd: Erna Kristín Kristjánsdóttir

Þögnin rofin: snjóstríð í miðbænum

Um þessar mundir dvelur hópur bandarískra háskólanema á Akureyri. Hópurinn kemur frá Washington University í Seattle en ferðin er hluti af mannfræðiáfanga sem nemarnir taka og hafa þau dvalið á ... Lesa »

Jökull Guðmundsson

Innlegg í umræðuna…

Þótt tillaga um persónukjör sem rædd hefur verið síðustu misseri sé skref til aukins lýðræðis, fylgja henni álitaefni. T.d. að stjórnmálasamtök sem tilbúin eru með framboðslista þyrftu að geta valið ... Lesa »

Ingunn V. Sigmarsdóttir, þakkar Þorvaldi heitnum Þorsteinssyni fyrir að hafa kennt sér að skrifa með hjartanu.

Aldrað fólk er mér mjög kært

Ingunn V. Sigmarsdóttir kennari við Giljaskóla á Akureyri hefur skrifað nýja bók, skáldsöguna Bræðraborg. Bókin kemur úr prentun á næstunni en Akureyri vikublaði lék forvitni á að vita hvað varð til ... Lesa »

Matti Matt og Heiða Ólafs beittu röddum sínum vel á tónleikunum

Óma Íslandslög – ´60-´80

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Kór Fjarðarbyggðar og popphljómsveit undir stjórn Daníels Þorsteinssonar komu fram á tónleikum, sem haldnir voru í Hamraborg í Hofi á Akureyri 2. nóvember. Stjórnandi ... Lesa »

DST_5497

Alveg ótrúlegur Pálmi

„Alveg ótrúlegur hann Pálmi,“ sagði einn af fjölmörgum tónleikagestum í Hofi þegar hann gekk út af þriggja tíma tónleikum Pálma Gunnarssonar og félaga í gærkvöldi en þá höfðu Pálmi og félagar spilað í ... Lesa »

Skoða meira