Töframaðurinn Einar Mikael býður öllum krökkum á Akureyri á fría sýningu og námskeið sunnudaginn 1. desember en sýning sem hann ætlaði að halda í Sjallanum sl. föstudag féll niður.
„Mér fannst leiðinlegt að komast ekki norður á föstudaginn en ég er mannlegur eins og við öll. Ég hef því ákveðið að halda fría sýningu og námskeið sunnudaginn 1. desember í Sjallnum kl. 15:00. Námskeiðið mitt er vinsælasta námskeið á Íslandi þrjú ár í röð yfir 9.000 krakkar hafa lært að galdra. Eftir sýninguna og námskeiðið geta allir fengið áritað plakat af mér,“ segir Einar Mikael og minnir á að þeir sem keyptu miða í forsölu í Imperial fá þá endurgreidda hjá þeim og fá að auki frían DVD disk.
„Ég hlakka til að sjá ykkur öll í jólaanda 1. desember,“ segir Einar Mikael að lokum. Hér fyrir neðan er hægt að horfa á myndband frá námskeiði Einars Mikaels.




























