Reiðvegir og framkvæmdir

Reiðvegir og framkvæmdir

Þóra Höskuldsdóttir

Margir stunda hestamennsku að atvinnu og sér til skemmtunar. Til þess að hægt sé að stunda hana þarf góða reiðvegi. Víða um land er hestatengd ferðaþjónusta í miklum blóma. Á Akureyri og nágrenni hefur slík þjónusta ekki náð sér vel á strik vegna skorts á góðum reiðleiðum. Það er synd því með bættum reiðvegum væru ágætis aðstæður fyrir hana hér. Fleiri ferðamenn styrkja aðra þjónustu hér í kring.

Opinberar tölur frá Hagstofu Íslands sýna að ca. 20-23 milljarðar koma til þjóðfélagsins vegna hestatengdrar ferðaþjónustu. Landssamband Hestamanna, LH, fær 50 milljónir af þessum peningum og skiptast þeir á öll hestamannafélög í landinu til viðhalds og endurnýjunar. Hestamannafélagið hér á Akureyri, Léttir, fékk 2 milljónir árið 2012. Þessi upphæð fer t.d. í að laga ræsi, brýr, girðingar, gamla reiðvegi og búa til nýja. Akureyrarbær hefur alfarið kostað reiðvegagerð í landi Akureyrar og sinnt viðhaldi og snjómokstri. Akureyrarbær hefur staðið sig vel og má nefna að í haust var í fyrsta skiptið gengið frá reiðvegamálum í aðalskipulagi Akureyrarbæjar. Það er mjög jákvætt og auðveldar framkvæmdir í framtíðinni. Það er snúið að koma upp reiðvegi í þéttbýlu sveitafélagi. Það þarf að huga að mörgu; golfvöllum, ökumönnum, tjaldstæðum, landeigendum o.s.frv. Oft þykir okkur hestamönnum þjarmað að okkur þegar við missum reiðvegi. En vitaskuld verður að deila landi.

Það eru margar fallegar og góðar reiðleiðir sem við höfum hér í kring. Reiðleiðirnar yfir Bíldshálsskarðið í Fnjóskadalinn austur í Sörlastaði eru fjölfarnar og fleiri leiðir mætti telja. Í sumar verður hægt að fara inn á kortasjá á vefsíðu LH og skoða kortlagðar reiðleiðir. Með þeim munu fylgja nákvæmar upplýsingar um áningarstaði og þjónustu í kring. Kortasjáin getur auðveldað ferðafólki að koma á nýja staði og ríða út. Reiðvegirnir okkar yrðu auglýstir. Reiðvegurinn frá Akureyri að Hrafnagili er góður en það vantar aðeins 8 km upp á reiðveginn alveg fram á Melgerðismela og þaðan inn í Eyjafjarðarbotn. Ef við höfum ekki reiðvegi verðum við að ríða á þjóðveginum. Sem er tilfellið á nokkrum stöðum. Það er hættulegt bæði fyrir menn og hesta og alls ekki bjóðandi ferðamönnum. Það væri okkur til gagns að bæta reiðleiðirnar hér. Þá gætum við kynnt þær og laðað að hestatengda ferðaþjónustu, sem skortur er á. Litlir og stórir hópar nota mikla þjónustu. Þeir þurfa pláss fyrir hestana, gistingu, borða á veitingastöðum og heimsækja sundlaugar. Allt þetta er til staðar í Eyjafjarðarsveit. Það efast heldur enginn um fegurð Eyjafjarðar; fjöllin sem gnæfa yfir sveitina, Eyjafjarðarána og perluna okkar, Akureyri. Ljúkum gerð reiðvega um Eyjafjörð til þess að heimamenn og ferðamenn geti notið fegurðarinnar á góðum reiðvegi.

Þóra Höskuldsdóttir
Höfundur er nemandi í 10. bekk í Giljaskóla.

Enn leitað í Hjaltadalsá

Á sjöunda tug björgunarsveitamanna er við leit í og við Hjaltadalsá þar sem minkaveiðimanns er saknað eftir að hann féll í ána í dag. Verið er að kalla út björgunarsveitir á ... Lesa »

Kynning á jógakennaranámi

Fimmtudaginn 13. júní kl. 18 heldur Guðrún Darshan jógakennari og hómópati kynningu á jógakennaranámi í Kundalini Jóga í Orkulundi á Akureyri. Þar fer Guðrún yfir jógakennaranámið ... Lesa »

Leitað að veiðimanni í Hjaltadalsá

Björgunarsveitir frá Blönduósi að Siglufirði hafa verið kallaðar út til leitar að minkaveiðimanni er féll í Hjaltadalsá í Hjaltadal fyrr í dag. Hvarf hann sjónum veiðifélaga síns ... Lesa »

Hús vikunnar: Gamli Barnaskólinn, Hafnarstræti 53

Síðast tók ég fyrir hinar öldnu stórbyggingar Menntaskólans á Akureyri á brún Brekkunnar, Gamla Skóla og Fjósið en nú er það önnur merk skólabygging neðan Brekkunnar, Gamli ... Lesa »

Geðverndarfélag Akureyrar skorar á Kristján Þór

Stjórn Geðverndarfélags Akureyrar og nágrennis skorar á heilbrigðisráðherra að finna án tafar bráðabirgðalausn á neyðarástandi í geðþjónustu barna og unglinga á Norður- og ... Lesa »

Fasaninn með lögheimili í Norðurgötu

„Hann slapp út hjá strákunum hérna á fimmtudagskvöldið,“ sagði Sigurvin "Fíllinn" Jónsson, eigandi fasanans sem flestir fréttamiðlar landsins sögðu frá í gær að hefði sést í ... Lesa »

Júbílantinn

„Dagarnir fyrir 17. júní skipa sérstakan sess hjá starfsmönnum og velunnurum Menntaskólans á Akureyri. Þá streyma inn í húsin hópar jubilanta, allir orðnir MA-ingar aftur, ótrúlega ... Lesa »

Kröfur Byggðastofnunar í þrotabú SPRON njóta forgangs

Þann 7. maí síðastliðinn var kveðinn upp úrskurður í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli sem Byggðastofnun hafði höfðað gegn slitastjórn SPRON. Málið snerist um hvort fjármunir, sem ... Lesa »

Einstakur árangur í sveinsprófi

Dýri Bjarnar Hreiðarsson frá Eyjafjarðarsveit náði þeim einstaka árangri að fá 10 í einkunn fyrir verklega þáttinn í sveinsprófi í húsasmíði sem fram fór í VMA í byrjun júní. ... Lesa »

Fasani á Akureyri - myndband

Elvar Árni Lund, fuglaáhugamaður og veiðimaður sá fasana Krossanesborgum í gær en svæðið er friðlýstur fólkvangur og varpstaður fjölda fuglategunda. Mjög sjaldgæft er að sjá Fasana ... Lesa »

Saga í fullu fjöri og undirbýr leyndarmál

Leikklúbburinn Saga er í fullu fjöri þessa dagana og er núna að undirbúa sýningar á leikritinu Leyndarmál eftir Jónínu Leósdóttur sem var frumsýnt árið 1997. „Við erum búin að ... Lesa »

In memoriam? sýnd á Akureyri

Tíu ár eru liðin síðan Kárahnjúkavirkjun var samþykkt og myndin In memoriam? var gerð fyrir erlendan markað um Kárahnjúkavirkjun og svæðið norðan Vatnajökuls. Myndin hefur af ... Lesa »

Staða skólastjóra við Varmahliðarskóla laus

Staða skólastjóra við Varmahlíðarskóla í Skagafirði er laus til umsóknar. Leitað er að öflugum og framsýnum leiðtoga sem er tilbúinn til að leiða þróttmikið skólastarf og taka ... Lesa »

Ljóð Davíðs og Jónasar sungin

Kór Möðruvallaklausturprestakalls heldur tónleika í samvinnu við Leikfélag Hörgdæla við ljóð Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi og Jónasar Hallgrímssonar frá Hrauni í Öxnadal. ... Lesa »

Hörmungarástand í uppsiglingu í geðheilbrigðismálum á landsbyggðinni

Kristín Elva Viðarsdóttir skrifar í dag, fyrir hönd stjórnar Félags sálfræðinga á Norður- og Austurlandi opið bréf til Kristjáns Þórs Júlíussonar, heilbrigðisráðherra, þar ... Lesa »

Ástand enn óviðunandi í skolpmálum - unnið að úrbótum

Eftir að aðal frárennslislögn fyrir skólp á Akureyri var lengd um 90 metra virðist mengun við strandlengju bæjarins og í Pollinum hafa minnkað. Þetta sýna mælingar sem gerðar hafa ... Lesa »

15 fjölskyldur fá boðskort á Iðnaðarsafnið

Í tilefni af 15 ára afmælis Iðnaðarsafnsins á Akureyri hefur verið ákveðið að bera út af handahófi 15 boðskort og bjóða þannig 15 fjölskyldum að koma og skoða safnið þeim að ... Lesa »

Illa gengur að semja við hvalaskoðunarfyrirtæki

Stéttarfélagið Framsýn í Þingeyjarsýslum hefur ákveðið að vísa kjaradeilu félagsins við Samtök atvinnulífsins vegna starfsmanna við hvalaskoðun á Húsavík til ríkissáttasemjara ... Lesa »

Reiðvegir og framkvæmdir

Margir stunda hestamennsku að atvinnu og sér til skemmtunar. Til þess að hægt sé að stunda hana þarf góða reiðvegi. Víða um land er hestatengd ferðaþjónusta í miklum blóma. Á ... Lesa »

10 ára afmæli Stangaveiðifélags Akureyrar

Stangaveiðifélag Akureyrar er 10 ára um þessar mundir en það var stofnað í maímánuði 2003 á Hótel KEA að viðstöddu fjölmenni. Það var í fyrstu skammstafað SVFA en að ósk ... Lesa »

Opinn fundur um búsetumál fatlaðra ungmenna

Akureyrarbær boðar til opins fundar um búsetumál fatlaðra ungmenna á Akureyri. Fundurinn verður haldinn í bæjarstjórnarsalnum á morgun, mánudaginn 10. júní, kl. 16:30. Á fundinum ... Lesa »

Opið hús hjá ferðaþjónustubændum í dag

Í dag, sunnudaginn 9. júní kl. 13-17 verður opið hús hjá ferðaþjónustubændum um allt land. Þeir bæir sem bjóða heim verða merktir með grænum og hvítum blöðrum við ... Lesa »

Tíu tónleika törn

Kórinn Hymnodia fagnar tíu ára starfsafmæli sínu á þessu ári. Kórinn fór heldur rólega af stað; vakti reyndar þegar í upphafi athygli sem nýgróður í tónlistarlífinu á Akureyri og ... Lesa »

Á annað hundrað skiptinema til útlanda árlega

AFS eru skiptinemasamtök sem starfa í yfir 50 löndum í öllum heimsálfum. Samtökin hafa verið starfandi á Íslandi frá árinu 1957. AFS á Íslandi sendir árlega milli 100-120 skiptinema til ... Lesa »

Útikennslustofa Giljaskóla eyðilögð

Útikennslustofa við Giljaskóla á Akureyri var lögð í rúst fyrr í vikunni. Það var nemandi í skólanum sem lét vita af skemmdunum en Guðmundur Hákonarson, smíðakennari við skólann ... Lesa »

Skoða meira