Þann 7. maí síðastliðinn var kveðinn upp úrskurður í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli sem Byggðastofnun hafði höfðað gegn slitastjórn SPRON. Málið snerist um hvort fjármunir, sem Byggðastofnun átti sem peningamarkaðsinnlán hjá SPRON við fall hans, teldust vera lán til SPRON, eða innstæða og nyti því forgangsréttar sem slík við slit sparisjóðsins.
Héraðsdómur féllst á kröfur Byggðastofnunar og komst að þeirri niðurstöðu að umræddir fjármunir teldust innstæða og nyti krafan því forgangs við slit SPRON.