Stangaveiðifélag Akureyrar er 10 ára um þessar mundir en það var stofnað í maímánuði 2003 á Hótel KEA að viðstöddu fjölmenni. Það var í fyrstu skammstafað SVFA en að ósk stangveiðifélags Akranes sem bar sömu skammstöfun var þessu breytt í SVAK sem þótti reyndar bráðsnjallt því þá var hægt að tala um SVAKalega veiðimenn og -konur.
Fyrsti formaður félagsins var Ragnar Hólm Ragnarsson sem sat til 2007 en þá tók Erlendur Steinar við og fór fyrir félaginu til ársins 2012. Á vordögum sama ár tók Guðrún Una Jónsdóttir við keflinu.
Tilgangur stofnunar félagsins var m.a að setja á fót félag sem væri opið öllum stangaveiðimönnum og legði m.a áherslu á að efla félagsstarfið og þjappa mönnum saman með fræðslukvöldum og félagsstarfi af ýmsum toga.
Í gegnum árin hafa aðalmarkmið félagsins verið að útvega félagsmönnum veiðileyfi , að stuðla að samstarfi milli stangveiðifélaga á Eyjafjarðarsvæðinu, bjóða uppá fræðslu um íþróttina og styrkja stöðu stangveiði sem almennings og fjölskylduíþróttar.
SVAK hefur dafnað og vaxið í gegnum árin. Félagið hefur fjölda veiðisvæða á sínum snærum, flest í umboðssölu en sum á leigu. Þar má nefna Ólafsfjarðará, Hofsá í Skagafirði, Hörgá, Svarfaðardalsá, Fjarðará í Hvalvatnsfirði, Hraun og Syðra-Fjall í Laxá í Aðaldal.
SVAK hefur haldið uppi öflugri heimasíðu frá stofnun félagsins þ.s m.a má finna greinargóðar lýsingar á veiðisvæðum félagsins, upplýsingum um félagið ásamt fréttum af veiði.
Félagið rekur einnig öflugan söluvef þs hægt er að kaupa veiðileyfi á veiðisvæði á vegum SVAK allan sólarhringinn gegn greiðslu með kreditkorti. Á heimasíðu félagsins svak.is er einnig að finna rafræna veiðibók þs veiðimenn skrá veiði sína og þar fá veiðimenn góðan aðgang að veiðiupplýsingum.
Til að stytta veiðimönnum stundir yfir vetrartímann hefur félagið haldið uppi fjölbreyttu vetrarstarfi frá upphafi og hefur það verið vel sótt.
Í tilefni afmælisins blés félagið til afmælishátíðar en hún var haldin við Leirutjörnina hjá Minjasafninu 1. júní sl. Þar kynntu félagar SVAK starfsemi félagsins, veiðisvæði og Veiðiskóla SVAK og tókst vel til.
Guðrún Una Jónsdóttir

