Elvar Árni Lund, fuglaáhugamaður og veiðimaður sá fasana Krossanesborgum í gær en svæðið er friðlýstur fólkvangur og varpstaður fjölda fuglategunda. Mjög sjaldgæft er að sjá Fasana í íslenskri náttúru enda hefur ekki verið leyfilegt að sleppa þeim lausum hér vegna smithættu en tilraunir hafa verið gerðar með að rækta fuglinn hér á landi.
Elvar segir að fuglinn hafi ekki verið á hreiðri enda hafi þetta verið karlfugl.
Sagt var frá því í fréttum Rúv að fasani hafi sést í húsagarði á Akureyri í síðustu viku en Jón Ingi Cæsarsson segir frá því á Facebooksíðu sinni að hann hafi séð fasana í Ránargötunni í fyrra og veltir því fyrir sér hvort um sama fuglinn sé að ræða.
Hér fyrir neðan má sjá myndband sem Elvar tók af fuglinum í Krossanesborgum.