„Hann slapp út hjá strákunum hérna á fimmtudagskvöldið,“ sagði Sigurvin „Fíllinn“ Jónsson, eigandi fasanans sem flestir fréttamiðlar landsins sögðu frá í gær að hefði sést í Krossanesborgum við Akureyri.
Sigurvin er með hálfgerðan fuglabúgarð í garðinum heima hjá sér í Norðurgötunni en þar býr hann með hænur og bréfdúfur auk fasanans burtflogna. „Ég er að bíða eftir að eignast kornhænur líka,“ segir Sigurvin en hann er annar stofnenda - og annar meðlima - Kornhænufélags Eyjafjarðar. „Ég fæ egg hjá Eiríki Stephensen, sem er hinn meðlimurinn í félaginu, þegar þær eru farnar að verpa hjá honum. Ég er kominn með útungunarvélina og bíð nú spenntur eftir eggjunum,“ segir Sigurvin.
Fasaninn burtflogni heitir Eggert en hlýðir þó ekki nafni nægilega vel til að hægt hafi verið að kalla á hann þegar hann slapp út fyrir helgina en Sigurvin er nokkuð bjartsýnn á að ná að fanga hann aftur. „Ég náði honum með háfi þegar hann slapp út í fyrra,“ segir Sigurvin og bætir því við að hænsnabændurnir Örn, Ari og Kári Sigurvinssynir sakni Eggerts mikið. .




