Kynning á jógakennaranámi

Kynning á jógakennaranámi

Fimmtudaginn 13. júní kl. 18 heldur Guðrún Darshan jógakennari og hómópati kynningu á jógakennaranámi í Kundalini Jóga í Orkulundi á Akureyri. Þar fer Guðrún yfir jógakennaranámið sem kennt er í jógastöðinni Andartak í Reykjavík og möguleika því tengdu. Allir eru velkomnir, byrjendur jafnt sem lengra komnir.

Guðrún segir jóga vera elsta mannræktarkerfi heims og aldrei hafa notið meiri vinsælda en einmitt nú og jógaáhugaiðkendum fari hratt fjölgandi. „Nýjustu rannsóknir sýna að um 8% fullorðinna bandaríkjamanna stunda jóga reglulega og það er 29% aukning frá rannsókn sem gerð var árið 2008,“ segir Guðrún og bætir því við að jógabylgjan sé tiltölulega nýlent á Íslandi og því megi búast við að vinsældir jóga margfaldist hér á komandi árum.

Kundalini jóga er eitt af mörgum formum jóga sem stunduð eru í heiminum og hefur notið mjög ört vaxandi vinsælda um allan heim. „Þetta er aldagamalt form af jóga og býður upp á mjög virkar leiðir til að takast á við streitu og álag nútímans og það er líka mjög aðgengilegt og eflandi,“ segir Guðrún.

Guðrún segir hátt í hundrað nemendur hafa útskrifast úr kennaranámi í kundalini jóga hér á landi frá árinu 2008. „Núna síðast í vor er 20 manna hópur að útskrifast frá Andartak“.

„Það getur verið dálítið erfitt fyrir okkur mörg að setjast niður og slaka á þegar búið er að vera mikið að gera og hugurinn er á flögri um víðan völl. Kundalini jóga byggir á taktföstum hreyfingum í takti við öndun og það er einmitt takturinn í æfingunum sem hjálpar huganum að sleppa streitunni og spennunni sem eru búnar að byggjast upp í annríkinu. Það er minni áhersla á teygjur og kyrrstöðu og meiri áhersla á að hreyfa við orkunni í gegnum öndun og takt,“ segir Guðrún.

„Æfingarnar hafa það markmið að styrkja innkirtlakerfi, taugakerfi og ónæmiskerfi – auk þess að gefa okkur bæði líkamlegan og andlegan styrk. Og hugleiðslan sem er óaðskiljanlegur hluti af kundalini jóga styrkir okkur í því að taka því sem að höndum ber af æðruleysi og að virkja kyrrðina og stækka þögnina innra með okkur“.

Guðrún telur að kundalini jóga höfði mjög vel til Íslendinga. „Af því við búum við svo mikið myrkur yfir veturinn og höfum þeim mun meiri þörf fyrir að kveikja ljósið innra með okkur“. „Kennaranámið er mjög eflandi og umbreytandi lífsreynsla og margir fara í námið bara fyrir sjálfa sig – ekki endilega með það markmið að fara að kenna. En svo endar oft með að þeir sem ætluðu það ekki í upphafi fara að kenna því það er svo gaman að deila því sem við finnum að gerir okkur gott“.

Fundur Alþýðufylkingar í kvöld

Alþýðufylkingin boðar til kynningar- og umræðufundar á Akureyri fimmtudagskvöldið 13. júní kl. 20. Fundurinn verður haldinn í Sontasalnum, Aðalstræti 54. Þorvaldur Þorvaldsson, ... Lesa »

Fetað í fótspor danska norðurljósaleiðangursins

Hvað uppgötvuðu danskir leiðangursmenn sem komu til Akureyrar til að rannsaka norðurljós árið 1899-1900? Veistu þú hver Harald Moltke og hvert hlutverk hans var í leiðangrinum? Svör ... Lesa »

Ekkert heitt vatn í Víðilundi

Vegna óvæntra atvika við brunnavinnu þurfti að taka heita vatnið af á stærra svæði en upphaflega reiknað var með. Auk svæðisins í Lundarhverfi sem áður hafði verið auglýst ... Lesa »

Nýr ráðherra hlynntur Nubo?

Breska blaðið Financial Times veltir því upp í grein á heimasíðu sinni hvort ráðherraskipti á Íslandi muni þýða aukinn framgang hjá Kínverjanum Huang Nubo, en hann hefur sótt um land ... Lesa »

Enn ekki búið að tala við Bismarck

Lögreglan á Húsavík hefur enn ekki rætt við Julius von Bismarck, þýska listamanninn sem grunaður er um að vera viðriðinn náttúruspjöll sem unnin voru í Mývatnssveit í vor. Þetta ... Lesa »

Sólarsellur og vindrafstöð knýja klósett við Hverfjall

Í undirbúningi er deiliskipulag þar sem gert er ráð fyrir fyrir salernisaðstöðu og bílastæði við uppgönguna á Hverfjall/fell. Stefnt er að því að framkvæmdin verði einkar ... Lesa »

Ferðaþjónustan hér eins og olían fyrir Norðmenn

Í kvöld kl. 20 verður myndin In memoriam? eftir Ómar Ragnarsson sýnd í Hofi en myndin var gerð haustið 2003 fyrir erlendan markað og hefur ekki verið sýnd hérlendis fyrr. Ómar verður ... Lesa »

Norðurorka

Langþreyttir vegna vatnsmengunar

Til snarpra umræðna kom á fundi sveitarstjórnar Svalbarðsstrandarhrepps á fundi í fyrradag en þar hafa um 600 íbúar sveitarfélagsins mátt sjóða neysluvatn síðan í leysingum í ... Lesa »

N4 fær tíu milljóna byggðagreiðslu

Sjónvarpsmiðillinn N4 á Akureyri fær tíu milljónir króna af opinberu fé til að vinna að bættri ímynd NA-lands. Þorvaldur Jónsson, framkvæmdastjóri N4, staðfestir þetta. „Það ... Lesa »

Björn Þorláksson

Að leggja niður náttúruvernd

Sú hugmynd Sigurðar Inga Jóhannssonar ráðherra Framsóknarflokksins að leggja niður umhverfisráðuneytið lýsir fullkominni firringu og vanvirðingu gagnvart einu stærsta verkefni ... Lesa »

Útskrift hjá Símey og Keili

Þann 6.júní útskrifaði SÍMEY um 100 þátttakendur sem lokið höfðu námsleiðum á vegum Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Námsleiðirnar sem nemendur voru að ljúka voru ... Lesa »

Ákveðið að halda áfram leit að minkaskyttunni

Stöðufundi hjá aðgerðastjórn leitarinnar að minkaskyttunni í og við Hjaltadalsá var að ljúka. Ákveðið hefur verið að halda leitinni áfram, a.m.k. fram á kvöld og verið er að ... Lesa »

Blóðgjafadagurinn er á morgun

Blóðgjafafélag Íslands og Blóðbankinn halda alþjóða blóðgjafadaginn hátíðlegan á morgun, fimmtudaginn 13. júní. Tilgangur þessa dags er að vekja athygli á blóðgjöfum og því ... Lesa »

Verðlaunuð fyrir að kenna fötluðu fólki á skíði

Beth Fox sem kennt hefur á námskeiðum fyrir fatlaða í Hlíðarfjalli undanfarin ár fékk á dögunum Cobb Partnership verðlaunin sem Fullbright stofnunin í Bandaríkjunum veitir. ... Lesa »

Síðasti séns á að sjá Stöngin inn

Sýningin Stöngin inn sem leikfélögin í Fjallabyggð settu upp í vetur var valin athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins 2013. Nú gefst Norðlendingum sem misstu af sýningunni í vetur eitt ... Lesa »

Kom í heiminn í sjúkrabíl í Öxnadal

Þriðja barn Álfhildar Leifsdóttur og Sölva Sigurðssonar sem búsett eru á Sauðárkróki kom í heiminn í sjúkrabíl í Öxnadalnum í morgun kl. 7:17. Frá þessu segir á vefnum ... Lesa »

Kundalini jóga – leið til að takast á við streitu á heildrænan hátt

Við íslendingar erum þekktir fyrir að vera dugleg þjóð og má nefna sem dæmi að orðið “duglegur” er ekki til í rómönskum málum eins og ítölsku og frönsku. Ef eitthvað er þá ... Lesa »

Heitavatnslaust í Lundarhverfi á morgun

Heita vatnið verður tekið af stórum hluta Lundahverfis á morgun fimmtudag frá kl. 8:00 og fram eftir degi vegna viðgerðar á heitavatnslögn í Skógarlundi og vinnu við að fjarlægja ... Lesa »

Veiðimannsins enn leitað

Leitin að minkaveiðimanninum sem féll í Hjaltadalsá í gær hefur enn engan árangur borið. Um 50 manns frá björgunarsveitum í Eyjafirði og Húnavallasýslum hafa leitað í alla nótt. Nú ... Lesa »

Enn leitað í Hjaltadalsá

Á sjöunda tug björgunarsveitamanna er við leit í og við Hjaltadalsá þar sem minkaveiðimanns er saknað eftir að hann féll í ána í dag. Verið er að kalla út björgunarsveitir á ... Lesa »

Kynning á jógakennaranámi

Fimmtudaginn 13. júní kl. 18 heldur Guðrún Darshan jógakennari og hómópati kynningu á jógakennaranámi í Kundalini Jóga í Orkulundi á Akureyri. Þar fer Guðrún yfir jógakennaranámið ... Lesa »

Leitað að veiðimanni í Hjaltadalsá

Björgunarsveitir frá Blönduósi að Siglufirði hafa verið kallaðar út til leitar að minkaveiðimanni er féll í Hjaltadalsá í Hjaltadal fyrr í dag. Hvarf hann sjónum veiðifélaga síns ... Lesa »

Hús vikunnar: Gamli Barnaskólinn, Hafnarstræti 53

Síðast tók ég fyrir hinar öldnu stórbyggingar Menntaskólans á Akureyri á brún Brekkunnar, Gamla Skóla og Fjósið en nú er það önnur merk skólabygging neðan Brekkunnar, Gamli ... Lesa »

Geðverndarfélag Akureyrar skorar á Kristján Þór

Stjórn Geðverndarfélags Akureyrar og nágrennis skorar á heilbrigðisráðherra að finna án tafar bráðabirgðalausn á neyðarástandi í geðþjónustu barna og unglinga á Norður- og ... Lesa »

Fasaninn með lögheimili í Norðurgötu

„Hann slapp út hjá strákunum hérna á fimmtudagskvöldið,“ sagði Sigurvin "Fíllinn" Jónsson, eigandi fasanans sem flestir fréttamiðlar landsins sögðu frá í gær að hefði sést í ... Lesa »

Skoða meira