Sigurlaug Anna, aðstoðarskólameistari, Jón Már skólameistari, Alma siðameistari og Valdimar Gunnarsson að morgni 17. júní í fyrra.
„Dagarnir fyrir 17. júní skipa sérstakan sess hjá starfsmönnum og velunnurum Menntaskólans á Akureyri. Þá streyma inn í húsin hópar jubilanta, allir orðnir MA-ingar aftur, ótrúlega glaðir yfir að hitta hópinn sinn og koma í gamla skólann sinn. Sumir eru jafnvel að koma í fyrsta sinn eftir að Möðruvellir voru reistir 1968 eða Hólar sem voru teknir í notkun árið 1996 og finnst allt hafa breyst. Öðrum finnst allt vera eins, og jafnvel sömu kennararnir ,,enn” að kenna.“ Svo skrifar Sigurlaug Anna Gunnarsdóttir, aðstoðarskólameistari MA á forsíðu vefjarins Júbílantinn sem nú hefur verið opnaður.
Sigurlaug segir samstöðu MA-inga mikils virði og samheldni þeirra eftir útskrift styrki skólann í starfi og skerpi á sérstöðu hans.
Til að styrkja enn frekar tengslin milli skólans og gamalla MA-inga hefur verið ákveðið að gefa út tímarit þar sem fjallað er um skólastarfið í dag en einnig brugðið upp fortíðarmyndum. Tímaritið ber nafnið Jubilantinn og mun vonandi koma út árlega í kringum 17. júní. Fyrsta tölublaðið er þó einungis á rafrænu formi en að ári er stefnt að því að blaðið verði fast í hendi.




