Í tilefni af 15 ára afmælis Iðnaðarsafnsins á Akureyri hefur verið ákveðið að bera út af handahófi 15 boðskort og bjóða þannig 15 fjölskyldum að koma og skoða safnið þeim að kostnaðarlausu.
Pabbi, mamma, afa, amma og börnin geta því komið og notið samverunnar á safninu. Sumir geta rifjað upp gamla tíma og aðrir lært um þá, t.d. þegar á Akureyri voru framleiddar vörur eins og Mix, Bíó Cóla, Perla og Geysi, Act skór, flautubuxur og Rússapeysur svo minnst sé á eitthvað sem fyrir augu ber á Iðnaðarsafninu.
Þetta verður endurtekið í júlí og ágúst, 15 fjölskyldum boðið í hverjum mánuði.
Iðnaðarsafnið á Akureyri geymir muni sem tengjast iðnaði og iðnframleiðslu liðinna tíma. Allt frá smjörlíkisgerðarvélum, prentvélum og rennibekkjum til saumavéla og áhöldum til úrsmíða. Fjöldi tækja og véla úr “gömlu verksmiðjunum” á Akureyri sem notaðar voru til framleiðslu á vörum, þar á meðal Saxbauta, Santos kaffi og Flóru smjörlíki, auk allskyns nytjahluta og iðnvarnings. Á efri hæð safnsins er sýning á hinni víðtæku fata- og skóframleiðslu sem fram fór á Akureyri á liðinni öld.



