Opið hús hjá ferðaþjónustubændum í dag

Opið hús hjá ferðaþjónustubændum í dag

Frá Skjaldarvík

Í dag, sunnudaginn 9. júní kl. 13-17 verður opið hús hjá ferðaþjónustubændum um allt land. Þeir bæir sem bjóða heim verða merktir með grænum og hvítum blöðrum við veginn.

Fólk er hvatt til að koma og fá sér kaffisopa, skoða aðstöðuna, spjalla við bændurna og upplifa sveitastemmninguna.

Á sumum bæjum verður hægt að heilsa upp á dýrin, fara á hestbak, gæða sér á heimabakstri og taka þátt í leikjum, föndri og fræðslu.

Á Engimýri í Öxnadal verður gestum boðið upp á kaffi og pönnukökur.

Í Skjaldarvík í Eyjafirði verður teymt undir börnum, hundar og hænur, léttar veitingar og karla- og drengjakór Hörgársveitar tekur nokkur vel valin lög. Gestum velkomið að skoða sig um.

Á gistiheimilinu Pétursborg í Hörgárbyggð verður Kaffi og vöfflur, föndur fyrir krakkana, trampolín og rólur í garðinum og hægt að heilsa upp á kanínur og hænur. Gestum velkomið að skoða sig um.

Á Brúnalaug í Eyjafjarðarsveit verður fyrirlestur um ylrækt kl. 15 og 16, grænmetissmakk og grænmeti til sölu. Ath. ekki má koma inn í gróðurhúsið ef maður hefur verið samdægurs í blómabúð, öðru gróðurhúsi eða garðskála

Á Öngulstöðum III í Eyjafirði verður heitt á könnunni og gestum velkomið að skoða sig um.

Eldá við Mývatn verður ljósmyndasýning, landslagsmyndir frá Norðausturlandi eftir svissneska ljósmyndarann góðkunna Max Schmid. Einnig skemmtilegar myndir Kára Jónassonar úr rúningsgöngum á Austurfjöllum sumarið 1960. Lifandi tónlist: Tríó Helga James en tríóið skipa: Helgi James Þórarinsson (13 ára), altsaxófónn, Jakob Stefánsson, bassi og Jón Illugason, gítar.

Á Hraunbæ og Hótel Rauðuskriðu í Aðaldal verður heitt á könnunni og gestum velkomið að skoða sig um.

 

Fimm ára gömul í fréttasettinu

Dagmar Ýr Stefánsdóttir hefur haft í nógu að snúast undanfarið. Hún starfar að markaðs- og kynningarmálum hjá Háskólanum á Akureyri auk fleiri starfa innan stofnunarinnar og nú er ... Lesa »

Allt með kyrrum kjörum á Bíladögum

Engin útköll hafa verið hjá lögreglu í kvöld vegna bíladaga og aðeins einn tekinn fyrir of hraðan akstur nú í kvöld. Það er mat þeirra sem fylgst hafa með bíladögum í kvöld að ... Lesa »

Ný röntgentæki á FSA

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra heimsótti Sjúkrahúsið á Akureyri við Eyrarlandsveg í gær þar sem hann ræddi við starfsfólk og kynnti sér starfsemina. Hann kynnti sér ... Lesa »

Mikill hraðakstur umhverfis Akureyri

Umferð hefur verið að þyngjast í kringum Akureyri í dag og á eftir að þyngjast enn að sögn lögreglunnar á Akureyri sem er með mikið umferðareftirlit í kringum bæinn og hafa nú ... Lesa »

Héraðsdómur Norðurlands Eystra

Falsaði undirskrift mömmu og ömmu

Ungur maður hefur í Héraðsdómi Norðurlands eystra verið sakfelldur fyrir skjalafals með því að hafa falsað nöfn mömmu sinnar og ömmu sem sjálfskuldaábyrgðaraðila þegar gefið var ... Lesa »

Vill að Íbúðalánasjóður geri könnun

Ekki er rétt sem fram kom í Akureyri vikublaði í síðustu viku í frétt um Íbúðalánasjóð að hótelstjórinn í Reynihlíð hafi ætlað að kaupa hús í Reykjahlíðarþorpi til að ... Lesa »

Skáld í Kakalaskála í Skagafirði

Nú er sumardagskráin á Sturlungaslóð í Skagafirði að rúlla af stað. Margt er í boði og nú í júní er leikþátturinn Skáld og gönguferð þar sem horft verður yfir ríki ... Lesa »

Lof og last

Lof og last vikunnar

Last fær Akureyrarbær/Sjónlistamiðstöðin svonefnda, skrifar listelskur bæjarbúi sem sendi blaðinu bréf. Í bréfinu segir að fáir viti í reynd fyrir hvað Sjónlistamiðstöðin standi, ... Lesa »

Slökkviliðið. Mynd úr safni

20 milljóna afgangur

„Nei, ég vil ekki tjá mig neitt um þetta mál,“ segir Þorbjörn Guðrúnarson slökkviliðsstjóri á Akureyri en gengið var frá starfslokasamningi hans í síðustu viku. Samskiptavandi ... Lesa »

Fundur Alþýðufylkingar í kvöld

Alþýðufylkingin boðar til kynningar- og umræðufundar á Akureyri fimmtudagskvöldið 13. júní kl. 20. Fundurinn verður haldinn í Sontasalnum, Aðalstræti 54. Þorvaldur Þorvaldsson, ... Lesa »

Fetað í fótspor danska norðurljósaleiðangursins

Hvað uppgötvuðu danskir leiðangursmenn sem komu til Akureyrar til að rannsaka norðurljós árið 1899-1900? Veistu þú hver Harald Moltke og hvert hlutverk hans var í leiðangrinum? Svör ... Lesa »

Ekkert heitt vatn í Víðilundi

Vegna óvæntra atvika við brunnavinnu þurfti að taka heita vatnið af á stærra svæði en upphaflega reiknað var með. Auk svæðisins í Lundarhverfi sem áður hafði verið auglýst ... Lesa »

Nýr ráðherra hlynntur Nubo?

Breska blaðið Financial Times veltir því upp í grein á heimasíðu sinni hvort ráðherraskipti á Íslandi muni þýða aukinn framgang hjá Kínverjanum Huang Nubo, en hann hefur sótt um land ... Lesa »

Enn ekki búið að tala við Bismarck

Lögreglan á Húsavík hefur enn ekki rætt við Julius von Bismarck, þýska listamanninn sem grunaður er um að vera viðriðinn náttúruspjöll sem unnin voru í Mývatnssveit í vor. Þetta ... Lesa »

Sólarsellur og vindrafstöð knýja klósett við Hverfjall

Í undirbúningi er deiliskipulag þar sem gert er ráð fyrir fyrir salernisaðstöðu og bílastæði við uppgönguna á Hverfjall/fell. Stefnt er að því að framkvæmdin verði einkar ... Lesa »

Ferðaþjónustan hér eins og olían fyrir Norðmenn

Í kvöld kl. 20 verður myndin In memoriam? eftir Ómar Ragnarsson sýnd í Hofi en myndin var gerð haustið 2003 fyrir erlendan markað og hefur ekki verið sýnd hérlendis fyrr. Ómar verður ... Lesa »

Norðurorka

Langþreyttir vegna vatnsmengunar

Til snarpra umræðna kom á fundi sveitarstjórnar Svalbarðsstrandarhrepps á fundi í fyrradag en þar hafa um 600 íbúar sveitarfélagsins mátt sjóða neysluvatn síðan í leysingum í ... Lesa »

N4 fær tíu milljóna byggðagreiðslu

Sjónvarpsmiðillinn N4 á Akureyri fær tíu milljónir króna af opinberu fé til að vinna að bættri ímynd NA-lands. Þorvaldur Jónsson, framkvæmdastjóri N4, staðfestir þetta. „Það ... Lesa »

Björn Þorláksson

Að leggja niður náttúruvernd

Sú hugmynd Sigurðar Inga Jóhannssonar ráðherra Framsóknarflokksins að leggja niður umhverfisráðuneytið lýsir fullkominni firringu og vanvirðingu gagnvart einu stærsta verkefni ... Lesa »

Útskrift hjá Símey og Keili

Þann 6.júní útskrifaði SÍMEY um 100 þátttakendur sem lokið höfðu námsleiðum á vegum Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Námsleiðirnar sem nemendur voru að ljúka voru ... Lesa »

Ákveðið að halda áfram leit að minkaskyttunni

Stöðufundi hjá aðgerðastjórn leitarinnar að minkaskyttunni í og við Hjaltadalsá var að ljúka. Ákveðið hefur verið að halda leitinni áfram, a.m.k. fram á kvöld og verið er að ... Lesa »

Blóðgjafadagurinn er á morgun

Blóðgjafafélag Íslands og Blóðbankinn halda alþjóða blóðgjafadaginn hátíðlegan á morgun, fimmtudaginn 13. júní. Tilgangur þessa dags er að vekja athygli á blóðgjöfum og því ... Lesa »

Verðlaunuð fyrir að kenna fötluðu fólki á skíði

Beth Fox sem kennt hefur á námskeiðum fyrir fatlaða í Hlíðarfjalli undanfarin ár fékk á dögunum Cobb Partnership verðlaunin sem Fullbright stofnunin í Bandaríkjunum veitir. ... Lesa »

Síðasti séns á að sjá Stöngin inn

Sýningin Stöngin inn sem leikfélögin í Fjallabyggð settu upp í vetur var valin athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins 2013. Nú gefst Norðlendingum sem misstu af sýningunni í vetur eitt ... Lesa »

Kom í heiminn í sjúkrabíl í Öxnadal

Þriðja barn Álfhildar Leifsdóttur og Sölva Sigurðssonar sem búsett eru á Sauðárkróki kom í heiminn í sjúkrabíl í Öxnadalnum í morgun kl. 7:17. Frá þessu segir á vefnum ... Lesa »

Skoða meira