Akureyrarbær boðar til opins fundar um búsetumál fatlaðra ungmenna á Akureyri. Fundurinn verður haldinn í bæjarstjórnarsalnum á morgun, mánudaginn 10. júní, kl. 16:30.
Á fundinum verður farið yfir stefnu og opinber viðmið í húsnæðismálum fatlaðs fólks og kynntar hugmyndir að íbúðum sem áætlað er að reisa í Borgargili 1 á Akureyri.




