Kór Möðruvallaklausturprestakalls heldur tónleika í samvinnu við Leikfélag Hörgdæla við ljóð Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi og Jónasar Hallgrímssonar frá Hrauni í Öxnadal. Tónleikarnir verða haldir í Hörgársveit og Þingeyjarsveit.
Frumflutt verða þrjú ný lög eftir tónskáldin Sigrúnu Mögnu Þórsteinsdóttur, Daníel Þorsteinsson og Guðmund Óla Gunnarsson. Kórstjóri er Sigrún Magna Þórsteinsdóttir.
- Miðvikudaginn 12. júní kl. 20:00 í hlöðunni að Stóra-Dunhaga, Hörgársveit.
- Fimmtudaginn 13. júní kl. 20:00 í hlöðunni að Draflastöðum, Þingeyjarsveit.
Aðgangseyrir er 1000 kr.
Léttar veitingar eftir tónleikana.







