Björgunarsveitir frá Blönduósi að Siglufirði hafa verið kallaðar út til leitar að minkaveiðimanni er féll í Hjaltadalsá í Hjaltadal fyrr í dag. Hvarf hann sjónum veiðifélaga síns og hefur ekki sést til hans síðan.
Talið er að maðurinn hafi fallið í ána um klukkan 13:30 en björgunarsveitir voru kallaðar út um einum og hálfum tíma síðar, eða klukkan 15:00 þar sem ferðafélaginn var ekki með síma og ók til Sauðárkróks til að gera viðvart um slysið.
Nú þegar eru á fimmta tug björgunarsveitamanna við leit og fleiri eru á leiðinni. Verður leitað með bátum og gönguhópum björgunarsveita. Hjaltadalsá er í miklum vexti og mórauð þessa dagana og því ljóst að aðstæður til leitar eru erfiðar.




