Kórinn Hymnodia fagnar tíu ára starfsafmæli sínu á þessu ári. Kórinn fór heldur rólega af stað; vakti reyndar þegar í upphafi athygli sem nýgróður í tónlistarlífinu á Akureyri og í Eyjafirði, en mjög fljótlega sást gjörla hvert stefndi og er kórinn nú orðinn – og hefur verið hin síðari árin – veigamikill þáttur í menningarlífinu; ekki einungis á Akureyri, heldur miklu víðar.
Stofnandi kórsins og stjórnandi hans frá upphafi er Eyþór Ingi Jónsson, organisti og kantor við Akureyrarkirkju. Óþarft er að hafa um hann mörg orð í kynningarskyni; að minnsta kosti ekki fyrir lesendur þessa blaðs og þá, sem búa á Akureyri og á Eyjafjarðarsvæðinu, en, óvíst er, hvort annan hvalreka meiri í tónmenningarlegu tilliti hefur rekið á fjörur byggðarlagsins á mörgum síðari áratugum svo afburða virkur hefur Eyþór Ingi verið í tónlistarlífinu hér í bænum. Hann starfar öðru framar sem organisti við Akureyrarkirkju og er sem slíkur í fremstu röð. Hæfni hans á hljóðfæri kirkjunnar er óumdeild og sérlega ánægjuleg er mikil geta hans í spuna á orgelið. Ekki síður hefur starf hans að söngmálum kirkjunnar verið með ágætum. Kór kirkjunnar hefur ráðist í viðamikil verkefni undir hans stjórn og er þar skemmst að minnast glæsilegrar uppfærslu og frammistöðu kórsins og annarra flytjenda í flutningi stórverksins „Missa Dei Patris“ eftir Jan Dismas Zelenka þann 28. apríl síðastliðinn, sem verður að minnsta kosti undirrituðum ógleymanlegur. Þá má nefna Kammerkórinn Ísold, sem er kvennakór stofnaður haustið 2009 og er skipaður ungum konum, öllum innan við þrítugt. Þessum kór stýrir Eyþór Ingi líka og ætlar honum að takast á við krefjandi og metnaðarfullan tónlistarflutning. Hér mætti enn áfram halda, þó ekki sé gert, því af mörgu öðru er að taka í tónlistarstarfi Eyþórs Inga bæði innan og utan Akureyrarkirkju. Hann kemur mikið víða við og hefur orðið á ekki mörgum árum lykilmaður í tónlistarlífi höfuðstaðar Norðurlands, byggðanna í Eyjafirði og miklu víðar.
Hymnodia Eyþórs Inga Jónssonar er skipuð 17 vönum söngvurum, sem allir hafa öðlast þjálfun í sönglistinni. Stjórnandinn ætlar kórnum að standa að flutningi kóratónlistar nokkuð almennt, en þó með höfuðáherslu á verk íslenskra tónskálda liðinna og lifandi og einnig verk frá barokktímanum, en þar liggur áhugi Eyþórs Inga mjög. Kórinn hefur þegar á ferli sínum sýnt mikla getu sína innan þess ramma, sem honum er settur, og hefur ekki síst verið ánægjulegt að hlýða á hann í flutningi barokktónlistar, en hún krefst natni og nákvæmni í flutningi eigi hún að njóta sín sem skyldi.
Í tilefni af tíu ára starfsafmæli kórsins kom sú hugmynd fram úr röðum kórfélaga, að tilvalið væri að halda upp af tímamótin með því að efna til tíu tónleika á tíu klukkustundum í tíu kirkjum á Eyjafjarðarsvæðinu. Hugmyndin var samþykkt og ákveðið efna til tónleikaraðarinnar 1. júní og að flytja tvær efnisskrár sína í hvorri kirkjunni. Hverjir tónleikar máttu ekki vara lengur en í svo sem 25 til 30 mínútur og ákveðið var að byrjað yrði í Laufáskirkju klukkan 13:00, en röðinni lokið í Ólafsfjarðarkirkju með tónleikum, sem hæfust kl. 22:00. Á milli upphafs og loka var sungið í Svalbarðskirkju, Kaupangskirkju, Munkaþverárkirkju, Minjasafnskirkjunni í Akureyri, Lögmannshlíðarkirkju, Möðruvallaklausturskirkju, Stærra-Árskógskirkju og Vallakirkju.
Það er vafalítið, að ekki hafa aðrir kórar haldið upp á afmæli sitt með þeim hætti sem hér var gert – að minnsta kosti ekki hér á landi og ef til vill – og reyndar væntanlega – ekki í veröld allri. Framtakið sýnir mikinn hug kórfélaganna til kórsins og starfsins innan hans og ekki síður vilja þeirra til þess að færa list sína til sem flestra. Þessi tónleikaröð er lofsverð og eftirtektarverð, eykur veg kórsins og ætti jafnvel erindi í heimsmetaskrá.
Haukur Ágústsson




