Leikklúbburinn Saga er í fullu fjöri þessa dagana og er núna að undirbúa sýningar á leikritinu Leyndarmál eftir Jónínu Leósdóttur sem var frumsýnt árið 1997. „Við erum búin að gera það aðeins nútímalegra og erum núna að undirbúa sýninguna sem við stefnum á að sýna í Rýminu í ágúst,“ segir Hafdís Sigurðardóttir, formaður Sögu.
Leikklúbburinn Saga var fyrst stofnaður árið 1976 en í honum starfa ungmenni á aldrinum 14-18 ára. Klúbburinn var endurreistur í fyrra eftir að hafa legið nokkur ár í dvala. Meðlimir í klúbbnum núna eru tæplega 20 en hann var endurvakinn í kjölfar þess að danski leikklúbburinn Ragnarock kom í heimsókn til Akureyrar og sýndi hér verkið Völvan. „Við gerðum götuleikhús með Ragnarock sem við sýndum hérna í miðbænum, í lystigarðinum og á Mærudögum og það var ótrúlega gaman svo við vildum endilega halda áfram með klúbbinn,“ segir Hafdís en í sumar mun Saga einnig taka þátt í verkefni með Ragnarock ásamt fleiri norrænum leikfélögum.
„Núna erum við að leita að strák á aldrinum 14-18 ára til að taka þátt í spennandi verkefni með okkur - ég auglýsi hér með eftir honum,“ segir Hafdís að lokum og biður áhugasama um að hafa samband í síma 821-8695 eða með skilaboðum á facebooksíðu Sögu.