Hvorki fleiri né færri en 18 söfn og sýningar við Eyjafjörð opna dyr sínar fyrir gestum og gangandi laugardaginn 4. maí frá kl 13-17. Tilefnið er Eyfirski safnadagurinn sem nú er haldinn í sjöunda sinn. Markmið safnadagsins er að vekja athygli á fróðlegum og forvitnilegum söfnum við fjörðinn og því öfluga safnastarfi sem þar er unnið. Safnadagurinn er að þessu sinni tileinkaður sögulegu fólki sem sett hefur svip sinn á samfélagið.
Söfnin 18 opna auk þess samsýninguna „Komið - skoðið” í menningarhúsinu Hofi á Akureyri þennan sama dag. Þar sýnir hvert safn forvitnilegan grip úr safnkosti sínum sem auk þess er einkennandi fyrir það. Tilgangurinn er sýna gestum og gangandi fjölbreytileika safnanna á forvitnilegan hátt.
Enginn aðgangseyrir.
Söfnin eru eftirfarandi:
Á Akureyri: Amtsbókasafnið, Sigurhæðir, Davíðshús, Flugsafn Ísland, Iðnaðarsafnið á Akureyri, Mótorhjólasafn Íslands , Leikfangasýningin í Friðbjarnarhúsi, Sjónlistamiðstöðin, Minjasafnið á Akureyri, Nonnahús.
Hrísey: Hús Hákarla-Jörundar í Hrísey
Á Dalvík: Byggðasafnið Hvoll, Friðland fuglanna Svafaðardal,
Á Ólafsfirði: Náttúrugripasafnið í Ólafsfirði
Siglufjörður: Síldarminjasafn Íslands
Eyjafjarðarsveit: Smámunasafn Sverris Hermannssonar Sólgarði.
Í Grýtubakkahreppi: Gamli bærinn Laufás, Útgerðarminjasafnið á Grenivík.

