Gospelkór Akureyrar ásamt hljómsveit ætlar að ljúka vetrinum og taka á móti sumrinu með tónleikum í Hofi, þriðjudaginn 7. maí klukkan 20:00.
„Gospelkórinn sló í gegn fyrir jólin með jólatónleikum sínum og má með sanni segja að þessir tónleikar verða ekki síðri. Á dagskránni verður breitt úrval frábærra þekktra laga í útsetningu Marínu Óskar Þórólfsdóttur,“ segir í kynningu um tónleikana
Stjórnandi kórsins er Marína Ósk en sérstakur gestur er Ívar Helgason en útskrifaðist árið 2003 frá tónlistaskólanum í Vínarborg og starfaði í Austurríki í nokkur ár þar sem hann tók þátt í uppfærslu ýmissa söngleikja.
Hljómsveitina skipa Haraldur Helgason, gítar, Kristján Edelstein, gítar, Valgarður Ómarsson, trommur, Stefán Gunnarsson, bassi og Valmar Valjaots.

