Það hefur verið heilmikið líf í markaðshaldi Akureyringa og nágranna í vor og miklir möguleikar til að vera umhverfisvæn og kaupa notuð föt og annað til handagagns. Nú um helgina eru markaðir í Rósenborg, Hlíðarbæ og Europríshúsinu.
Í Ungmennahúsinu, efstu hæð í Rósenborg eru nokkrar stelpur úr MA að selja úr fataskápnum sínum. Þar er opið til kl. 19 í kvöld, föstudag, og frá kl. 12-17 á laugardag. Sjá upplýsingar á Facebook hér
Í Hlíðarbæ verður Sumarmarkaður á laugardag kl. 13-17. Sumarmarkaður verður haldinn. Þar er „fullt hús af fínum varningi,“ eins og segir í auglýsingu, „ýmsar handunnar vörur, safngripir, bækur, fatnaður, skartgripir, Volare vörur, glingur fyrir börnin og ýmislegt úr geymslunni og síðast en ekki síst ást og friður.“ Sjá upplýsingar á Facebook hér
Í Europrishúsinu við Baldursnes verður aftur haldinn markaður, en þar var einnig markaður um síðustu helgi. „Við höfum fengið alveg frábærar viðtökur við markaðnum, síðasta helgi gekk mjög vel og fóru allir sáttir og sælir úr húsi,“ segir Rakel Bragadóttir ein aðstandenda markaðarins og bætir því við að mikið hafi verið hringt og spurt út í markaðinn úr nágrannabyggðum og alveg austan frá Reyðarfirði. Nú um helgina verður opið kaffihús, jafnvel með lifandi tónlist. „Það verður allt milli himins og jarðar til sölu og yfir 50 aðilar að selja á markaðnum. Hægt verður að fá fatnað og skó á alla fjölskylduna, kjöt frá Nautakjöt.is, nammi frá Sælgætisgerð Akureyrar, harðfisk, hákarl og lausfrysta þorskhnakka frá Darra á Grenivík. Einnig verða söluaðilar frá Blátt áfram að selja Ljósið.“ Þessi markaður verður opinn föstudag 14-18, laugardag 11-17 og sunnudag 13-17.

