Aprílmánuður var kaldur á landinu og engin hlýindi eru í kortunum en vægu frosti er spáð alla næstu viku.
Meðalhiti á Akureyri í apríl var -0,4 stig sem er 3,8 stigum undir meðallagi síðustu 10 aprílmánaða og kaldasti aprílmánuður á Akureyri síðan 1990 en er þó aðeins 2 stigum undir meðallagi áranna 1961 til 1990.
Úrkoma var aðeins yfir meðallagi en úrkomudagar færri en í meðalári og sólskinsstundir í tæpu meðallagi.
Akureyri er meðalhitinn fyrstu fjóra mánuði ársins 0,4 stig, 1,3 stigi ofan meðaltalsins 1961 til 1990, en 0,1 stigi undir meðaltali áranna 2001 ti 2010. Tímabilið er það 25. hlýjasta frá upphafi samfelldra mælinga á Akureyri 1882. Þetta kemur fram á vef Veðurstofunnar

