Núna er hann byrjaður að gera sér grein fyrir því að kynin eru tvö. Nýverið læddist upp úr honum að að Dóra landkönnuður væri „bara stelpa“. Mitt femíníska hjarta missti úr slag og ég ræddi þetta við hann en hann gat ekki svarað neinu frekar til um þetta. Við höfum, að undirlagi móðurinnar, horft á Dóru og hingað til hefur hann haft gaman af. En núna er hún byrjuð að líða fyrir kyn sitt. Ég veit ekki hvaðan þetta kemur, hann ætlar enn að verða stór og sterkur eins og mamma og pabbi.
Nú höfum við reynt að vera meðvituð á heimilinu en samt slæðist þetta inn.Um daginn daginn kom vinur hans í heimsókn. Við eigum til hér gamla Playstation tölvu og (ekki hafa samband við Barnaverndarnefnd!) gamlan slagsmálaleik Tekken 3. Þeir félagar fengu að spreyta sig á leiknum og ekki datt þeim í hug að velja sér kvenkyns keppanda. En svo fór að annar keppti við tölvuna sem stillti upp keppendum að handahófi og m.a. kvenkyns keppanda. Þetta fannst þeim alveg ómögulegt. Og til þess að gera illt vera þá fannst alveg ógurlega fyndið og töluðu nánast stanslaust um hvað fígúran hefði „stóran rass“! Tæplega 5 ára að meðaltali og strax byrjaðir að dæma konur út frá útliti.

