Kona á fimmtugsaldri sem lét ófriðlega í flugi frá Reykjavík til Akureyrar í dag var handtekin við komu vélarinnar á Akureyrarflugvelli.
Haft er eftir varðstjóra hjá lögreglunni á Akureyri að konan hafi látið ófriðlega í fluginu og ekki farið eftir fyrirmælum.
„Einn flugfarþegi var ölvaður og lét ófriðlega. Hún var sífellt á ferðinni, æddi á klósettið og reif allt þar. Mér skilst að þurft hafi að loka klósettinu á suðurleiðinni,“ segir Guðmundur Svanlaugsson varðstjóri hjá lögreglunni á Akureyri í samtali við Morgunblaðið. Hún hafi neitað að setjast í sæti sitt við lendingu og verið það erfið að ákveðið var að hringja í lögreglu.
Sjaldgæft er að farþegar séu með ólæti í innanlandsflugi og aðeins einu sinni hefur farþegi verið handtekin við komu til Akureyrar. En konan, sem nú situr í fangaklefa á Akureyri mun líklega verða kærð fyrir að ógna flugöryggi enda er svona framkoma litin alvarlegum augum.

