Gleráin rauð af litarmengun

Gleráin rauð af litarmengun

Mengun í Glerá. Mynd: Ómar Jónsson

Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd var Gleráin ekki kræsileg á að líta í hádeginu dag því rautt litarefni úr steypu frá Möl og sandi var skolað út í ána sem varð mjög rauðleit í kjölfarið.

Alfreð Schiöth, heilbrigðisfulltrúi Norðurlands eystra segir mjög slæmt að affallsvatn frá steypustöðinni fari beint út í Glerá en það sé vegna þess að Akureyrarbær gerir ekki ráð fyrir þessháttar starfsemi á svæðinu þar sem steypustöðin er. Það eru því engar affallslagnir á svæðinu en það stendur heldur ekki til að leggja þær þar sem starfsemin verður færð annað í framtíðinni. „Þeim er illa við að fá þetta inn á lagnakerfið og þess vegna hefur þetta verið látið viðgangast á meðan ekki er fundinn betri staður fyrir starfsemina,“ segir Alfreð og bætir við að ýmsar leiðir séu til að sporna við að mengun á borð við yfirborðsvatn frá götum sem og ýmissi starfsemi, fari út í umhverfið t.d. með setþróum.

Í reglum um starfsleyfisskilyrði fyrir steypustöðvar segir meðal annars:

4.4 Frárennsli frá stöðinni skal hreinsað áður en því er veitt í móttaka.
a. Fráveituvatn frá steypustöð, allri þvottaðstöðu fyrir búnað, tæki og bifreiðar, endurvinnslustöð, akstursleiðum í kringum steypustöð og öðrum þeim stöðum þar sem líkur eru á sementsríku vatni, skal leiða í fráveitu sveitarfélagsins nema um annað sé getið í lóðarskilmálum. Á fráveitu skal vera fellibúnaður eða annar búnaður með sambærilega virkni sem tryggi hreinsun á fráveituvatni að því marki að það geti ekki skaðað fráveitukerfi sveitarfélagsins
b. Afrennsli frá öðrum hlutum lóðar, en þar sem líkur eru á að vatn sé sementsmengað, skal leitt í sandfang áður en það fer í fráveitu bæjarfélagsins eða í annan móttaka í samræmi við lóðarskilmála.

Reglurnar í heild sinni má nálgast hér

Þessar myndir tók Völundur Jónsson af Glerá kl. 14 í dag

 

 

Náttúruníðingur fundinn?

Hlynur Hallsson, myndlistarmaður á Akureyri, telur sig hafa fundið þann sem framdi náttúruspjöll í Mývatnssveit á dögunum. Hlynur var á sýningarölti í Berlín þegar hann rakst á ... Lesa »

Bát bjargað með nýjum björgunarbát Grímseyinga

Á sjómannadagshátíðinni um sl. helgi tók björgunarsveitin Sæþór í Grímsey í notkun nýjan björgunarbát. Ekki liðu nema 3 dagar frá því að báturinn var tekinn í notkun þar til ... Lesa »

Slökkviliðið. Mynd úr safni

Slökkviðlismenn fagna brotthvarfi slökkviliðsstjóra

Anton Carrasco, trúnaðarmaður slökkviliðsmanna á Akureyri, fagnar því að lausn sé að nást á vandamálum sem staðið hafa yfir misserum saman innan slökkviliðsins. Tilkynnt var á ... Lesa »

Slökkviliðsstjórinn á Akureyri lætur af störfum

Þorbjörn Guðrúnarson, slökkviliðsstjóri á Akureyri, hefur látið af störfum, þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem Akureyrarbær sendi rétt í þessu. Fram kemur að bærinn þakki ... Lesa »

Gríðarlegt vatnsmagn í Skjálfandafljóti

Þessar mynd tók Búi Stefánsson af Goðafossi stuttu eftir miðnættið í gær en þá var gríðarlega mikið vatnsmagn í Skjálfandafljóti. Rennslið náði hámarki síðar um nóttina og ... Lesa »

Hemmi Gunn var prédikun

Þegar 11 ára gamall sonur minn spurði mig í forundran í morgun hvort það væri virkilega satt að hann Hemmi Gunn væri dáinn sannfærðist ég endanlega um að Hemmi hafi verið ... Lesa »

Neysluvatn á Svalbarðsströnd þarf að sjóða vegna mengunar

Norðurorka hefur sent frá sér tilkynningu til viðskiptavina vatnsveitu Norðurorku í Svalbarðsstrandarhreppi þar sem íbúum er ráðlagt að sjóða allt neysluvatn vegna mengunar í ... Lesa »

Sjúkrahúsinu afhentur sjúkravagn af fullkomnustu gerð

Verkstjórasamband Íslands afhenti nýlega Sjúkrahúsinu á Akureyri sjúkravagn af fullkomnustu gerð sem notaður verður á skurðdeild sjúkrahússins. 35. þing Verkstjórasambandsins var ... Lesa »

7000 gestir með skemmtiferðaskipum í dag

Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins lagði við bryggju á Akureyri í gær en í dag verður líklega einn stærsti skipadagur sumarsins því þá koma tvö stór skemmtiferðaskip. Annað ... Lesa »

Kvennahlaupið er á laugardaginn

Kvennahlaup ÍSÍ fer fram á laugardaginn, 8. júní en á Akureyri verður hlaupið frá Ráðhústorginu kl. 11 en upphitun hefst kl. 10:45. Þátttakendur geta valið um að hlaupa 2 eða 4 km. ... Lesa »

Ókeypis fyrirlestur um gönguferðir

Safetravel og Slysavarnafélagið Landsbjörg bjóða upp á ókeypis fyrirlestur um gönguferðir á fimmtudaginn, 6. júní, kl. 20. Fjallað verður um undirbúning, útbúnað og framkvæmd en ... Lesa »

Gríðarlegir vatnavextir í Eyjafjarðará

Þau miklu hlýindi sem gæla nú við Norðlendinga hafa ýmislegt í för með sér þegar kemur að náttúrunni og má t.d. sjá Eyjafjarðará belja áfram kolmórauða svo þar sem áður voru ... Lesa »

Áfram aurskriðuhætta í Köldukinn

Vegagerðin hefur nú tilkynnt að vegurinn um Köldukinn verði lokaður út vikuna og fram yfir helgi en sl. nótt féll í þriðja sinn aurskriða á svæðinu. Gunnar Bóasson, yfirverkstjóri ... Lesa »

Metanvinnslu á Akureyri seinkar enn

Norðurorka hefur nú sent frá sér tilkynningu um að enn verði tafir á því að sala á metangasi til bifreiða hefjist á Akureyri. Upphaflega var áætlað að sala gæti hafist sl. haust en ... Lesa »

Mezzoforte á Græna hattinum

Hljómsveitin Mezzoforte spilar á Græna hattinum annað kvöld, miðvikudag. Hljómsveitin spilar ekki mikið á Íslandi en heldur nú tónleika á Græna hattinum og í Hörpu í Reykjavík í ... Lesa »

Stöðug fjölgun á Akureyri

Íbúaþróun á landinu hefur verið með ákaflega mismunandi hætti á landinu undanfarin ár. Byggðastofnun hefur nú birt tölur um íbúaþróun allra sveitarfélaga frá 1998. Stöðug ... Lesa »

Þriðja aurskriðan lokar veginum í Köldukinn

Í nótt féll þriðja aurskriðan í Köldukinn, nú við bæinn Hlíð. Þessi skriða er sú stærsta af þeim sem hingað til hafa fallið og Ólafur Ingólfsson, bóndi í Hlíð, segir að hún ... Lesa »

Aukning í fiskeldi í Kelduhverfi

Fiskeldisfyrirtækið Rifós hf. í Kelduhverfi í Norður-Þingeyjarsýslu býr sig undir stækkun fyrirtækisins með uppbyggingu á bleikjueldi á landi. Frá þessu segir á vef Samtaka ... Lesa »

Vilja frekar leikskólapláss en daggæslu

51% foreldra á Akureyri með börn í daggæslu myndu heldur kjósa að hafa barnið á leikskóla. Þetta kemur fram í skýrslu sem Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri gerði ... Lesa »

Sumarblíða framundan

Veðurspáin er Norðlendingum sérstaklega hagstæð nú í upphafi vikunnar og stefnir í að hiti fari jafnvel yfir 20 stig. Hlýjast verður á Norðausturlandi enda líklegast að þar verði ... Lesa »

Landbúnaðarráðherra heimsækir bændur á Norðurlandi

  Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra heimsækir í dag bændur á Norðurlandi til að kynna sér stöðu mála vegna kalskemmda í túnum en útlit er ... Lesa »

Jarðskjálftar á Norðurlandi

„Jarðskjálftar á Norðurlandi“ er nafn á ráðstefnu sem haldin verður á Húsavík dagana 6. - 8. júní n.k. Í kjölfar jarðskjálftanna norður af Eyjafirði s.l. haust hófu nokkrir ... Lesa »

Settar verði upp þrengingar í Skógarlundi

Skipulagsnefnd Akureyrarbæjar hefur óskað eftir tillögum frá framkvæmdadeild bæjarins um þrengingar í Skógarlundi. Þetta kemur fram í fundargerð Skipulagsnefndar frá 29. maí sl. Á ... Lesa »

Arndís Bergsdóttir

GÓÐ KAUP

Ég get ekki hætt að hugsa um slysið í Dhaka verksmiðjunni í Bangladesh þar sem yfir þúsund manns fórust. Í verksmiðju sem var að hruni komin, við aðstæður sem enginn myndi láta ... Lesa »

Snjóbrettaveturinn 2012/2013 - myndband

Nú er snjóbrettatímabilinu lokið þennan veturinn hér á Akureyri en Jóhann Sigurðsson er búinn að setja saman myndband um brettastemmningu vetrarins. JOHANN SIGURDSSON FULL VIDEO 2013 ... Lesa »

Skoða meira