Mjög harður árekstur varð á Leirubrú við Akureyri um kl. 17 í dag. Vegurinn er enn lokaður fyrir umferð en verður væntanlega opnaður mjög fljótlega að sögn lögreglu en mikil olía fór á veginn sem og brak úr fólksbílnum sem verið er að þrífa.
Um var að ræða árekstur jeppa og fólksbíls og segir sjónarvottur vinstra framhorn jeppans hafa skollið beint framan á fólksbílnum. Betur fór þó en á horfðist því par og barn sem voru í fólksbílnum stigu út úr bílnum en bíllinn leit mjög illa út. Beita þurfti klippum til að ná ökumanni jeppans út en lögregla telur líklegt að hann sé ekki mikið slasaður, hann var einn í bílnum.

