Norður á hjara veraldar!

Norður á hjara veraldar!

Norðurhjari er klasi ferðaþjónustuaðila sem ná frá Kelduhverfi í vestri að Bakkafirði í austri. Markmið Norðurhjara er að efla ferðaþjónustu á svæðinu og bæta aðgengi ferðamanna að mörgum náttúruperlanna sem svæðið hefur upp á bjóða, en þær eru margar enda víðfeðmt svæði. Þar er að finna flest allt sem hugan girnir, hvort heldur sem leitað er eftir stórbrotinni náttúru eða sögulegri menningu. Þetta er svæði þar sem marga fuglaskoðara dreymir um að verja vorinu og sumrinu en jafnframt sækjast veiðimenn í árnar og vötnin. Fræðandi ferðaþjónusta kemur æ sterkar inn og ósnortin náttúran það sem margan ferðamanninn langar að upplifa í fríi sínu frá amstri hins daglega lífs.

Norðurhjarasvæðið er nær en margur heldur. Það tekur ekki nema klukkutíma og 45 mínútur að keyra frá Akureyri í Gljúfrastofu, gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs í Ásbyrgi. Frá Ásbyrgi eru aðeins 40km til að komast á hjara veraldar að Melrakkasléttu. Frá Ásbyrgi og í paradís fuglaskoðunar að Langanesi eru ekki nema 120km. Það er áætlunarflug til Þórshafnar og Húsavíkur frá Reykjavík og strætó gengur frá Akureyri til Þórshafnar (ath. þarf að panta með 4 tíma fyrirvara).

Boðið er upp á ýmsa þjónustu á svæðinu: gistingu, veitingar og afþreyingu. Auðn og kyrrð eru áberandi fyrir svæðið og ströndin er áberandi hluti af Norðurhjarasvæðinu. Vegurinn með Melrakkasléttu er víða nánast í fjöruborðinu þar sem eyðibýli og rekaviður skipa stóran sess í umhverfinu. Á Melrakkaás við Raufarhöfn er að rísa Heimskautsgerði, sem þrátt fyrir að vera skammt á veg komið laðar þegar til sín áhugasama ferðamenn um íslenska menningu og norræna goðafræði. Fá svæði á Íslandi hafa upp á jafn mikla fjölbreytni af fuglategundum að bjóða til skoðunar og þetta svæði við jaðar heimskautsbaugs, hvort heldur sem er af staðfuglum, farfuglum eða flækingum.

Norðurhjarasvæðið býr yfir mikilli og fjölbreyttri náttúrufegurð og er sannkallað kjörlendi fyrir áhugamenn um jarðfræði en flekaskil Norður-Ameríkuflekans og Evrasíuflekans liggja um norður gosbeltið og til sjávar í Öxafirði. Vel þekktar jarðmyndanir eru í Jökulsárgljúfrum í Vatnajökulsþjóðgarði sem tilheyrir Norðurhjarasvæðinu en víða annars staðar í Kelduhverfi og Öxarfirði má sjá misgengi, sigdali, gíga og ýmsar aðrar jarðmyndanir og náttúruperlur.

Fræðslu um menningu og náttúru svæðisins er víða að finna, t.d. í Byggðasafninu við Snartarstaði, Skjálftasetrinu á Kópaskeri, við Heimsskautsgerðið á Raufarhöfn, í Sauðaneshúsi á Langanesi og gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs svo eitthvað sé nefnt.
Verið velkomin í heimsókn!

Inga Fanney Sigurðardóttir
Höfundur er verkefnisstjóri Norðurhjara.

Vortónleikar strengjasveita Tónlistarskólans haldnir í dag

Vortónleikar strengjasveita Tónlistarskólans á Akureyri eru haldnir í dag, mánudag, kl 17:30 í Hömrum í Menningarhúsinu Hofi. Fram koma Strengjasveit 1 en stjórnandi hennar er Ásdís ... Lesa »

Beðið eftir vorinu

Norðlenskir bændur eru orðnir langeygir eftir vorinu en talsvert snjóaði víða á Norðurlandi sl. nótt og bætti því enn á þann snjó sem fyrir var. Erlingur Ingvarsson bóndi á ... Lesa »

Símaskráin kemur út í dag

„Símaskráin 2013 sækir innblástur í sjálfboðaliðastarf Slysavarnarfélagsins Landsbjargar og minnir á þau verðmæti sem íslenskt samfélag á í þeim 18.000 konum og körlum sem helga ... Lesa »

Stöngin inn er Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins 2013

Samvinnuverkefni Leikfélags Ólafsfjarðar og Leikfélags Siglufjarðar, Stöngin inn var valin Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins 2013 af valnefnd Þjóðleikhússins. Þetta var tilkynnt ... Lesa »

Vorhátíð í Síðuskóla

Vorhátíð var haldin í dag í Síðuskóla. Fremur kalt var í veðri og var hátíðin að mestu haldin innandyra. Kennslustofur voru opnar og þar var til sýnis ýmislegt sem nemendur hafa ... Lesa »

Smíðuðu kerrur og ferðagrill

Nemendur sem ljúka námi í vor í stálsmíði settu á dögunum punktinn yfir i-ið í smíði á tveimur voldugum kerrum og einnig smíðaði hver nemandi ferðagrill. Smíðin er hluti af ... Lesa »

Að ala upp jafnréttissinnaðan dreng

Strákurinn minn verður 5 ára á þessu ári. Ég hef reynt eftir fremsta megni að ala hann upp sem jafnréttissinna. Einhverra hluta vegna er hann samt ægilegur gaur og leikur sér bara að ... Lesa »

Verkaskipting heimilanna

Hefur verkaskipting heimilanna farið batnandi á síðustu árum og áratugum? Ég tel svo vera. Fyrir mörgum árum síðan átti konan að vinna öll heimilisverkin. Karlinn átti bara að vinna ... Lesa »

Félagsfræðimessa í MA á miðvikudag

Stela strákar frekar hugbúnaði af netinu en stelpur? Finnst fólki almennt siðferðislega réttara að stela á netinu en í verslunum? Hvað er pot á Facebook? Eru meiri líkur á því að ... Lesa »

Takk fyrir okkur !

Við undirrituð, nýkjörnir þingmenn og varaþingmenn Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Norðausturkjördæmi, þökkum kjósendum veittan stuðning og traust. Úrslitin, tæp 16% ... Lesa »

Afrek – barokktónleikar

Jan Dismas Zelenka (1679-1745) er tónskáld, sem ekki er ýkja kunnugt á meðal almennra unnenda klassískrar tónlistar. Þetta sætir nokkurri furðu, þar sem verk hans, þau þeirra, sem komið ... Lesa »

Harður árekstur varð við Leirubrú - vegurinn enn lokaður

Mjög harður árekstur varð á Leirubrú við Akureyri um kl. 17 í dag. Vegurinn er enn lokaður fyrir umferð en verður væntanlega opnaður mjög fljótlega að sögn lögreglu en mikil olía ... Lesa »

Flugmenn

Flugdólgur handtekinn við lendingu á Akureyrarflugvelli

Kona á fimmtugsaldri sem lét ófriðlega í flugi frá Reykjavík til Akureyrar í dag var handtekin við komu vélarinnar á Akureyrarflugvelli. Haft er eftir varðstjóra hjá lögreglunni á ... Lesa »

Vel heppnuð hópslysaæfing á Akureyrarflugvelli í dag

Um fjögur hundruð manns tóku þátt í flugslysaæfingu sem haldin var á Akureyrarflugvelli í dag. Æfingin byggir á flugslysaáætlun flugvallararins og þátttakendur frá öllum ... Lesa »

Norður á hjara veraldar!

Norðurhjari er klasi ferðaþjónustuaðila sem ná frá Kelduhverfi í vestri að Bakkafirði í austri. Markmið Norðurhjara er að efla ferðaþjónustu á svæðinu og bæta aðgengi ferðamanna ... Lesa »

Gospelkór Akureyrar heldur tónleika

Gospelkór Akureyrar ásamt hljómsveit ætlar að ljúka vetrinum og taka á móti sumrinu með tónleikum í Hofi, þriðjudaginn 7. maí klukkan 20:00. „Gospelkórinn sló í gegn fyrir jólin ... Lesa »

Súkkulaðikaka með rauðrófum

Rauðrófur gefa dásamlega mýkt og raka í þessa köku og stífþeyttar eggjahvítur gera að verkum að hún er létt og ljúffeng. Soðnar rauðrófur er hægt að kaupa í lofttæmdum umbúðum ... Lesa »

Kaldasti aprílmánuður á Akureyri síðan 1990

Aprílmánuður var kaldur á landinu og engin hlýindi eru í kortunum en vægu frosti er spáð alla næstu viku. Meðalhiti á Akureyri í apríl var -0,4 stig sem er 3,8 stigum undir meðallagi ... Lesa »

Lærði í kosningabaráttunni að karlar tala meir en konur

Brynhildur Pétursdóttir, ritstjóri hjá Neytendasamtökunum, hlaut nýjan starfsvettvang þegar nokkuð var liðið á sunndagsmorgun en þá kom í ljós að hún datt inn sem jöfnunarmaður í ... Lesa »

Nokkrir markaðir haldnir um helgina

Það hefur verið heilmikið líf í markaðshaldi Akureyringa og nágranna í vor og miklir möguleikar til að vera umhverfisvæn og kaupa notuð föt og annað til handagagns. Nú um helgina eru ... Lesa »

Gleráin rauð af litarmengun

Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd var Gleráin ekki kræsileg á að líta í hádeginu dag því rautt litarefni úr steypu frá Möl og sandi var skolað út í ána sem varð mjög rauðleit ... Lesa »

Lof og last

Lof og last vikunnar

Last fá þeir sem búa svo um hnútana að hér verður á endanum hvergi hægt að aka um götur bæjarins án þess að eyðileggja ökutæki á hraðahindrunum, segir karl. Hann telur að áhersla ... Lesa »

Alþjóðlegt krullumót á Akureyri

Um helgina fer fram hið árlega alþjóðlega krullumót, Ice Cup, í Skautahöllinni á Akureyri. Þetta er í tíunda sinn sem mótið er haldið, en það er Krulludeild Skautafélags Akureyrar ... Lesa »

Frítt inn á söfnin

Hvorki fleiri né færri en 18 söfn og sýningar við Eyjafjörð opna dyr sínar fyrir gestum og gangandi laugardaginn 4. maí frá kl 13-17. Tilefnið er Eyfirski safnadagurinn sem nú er ... Lesa »

Nýr fjármálastjóri hjá MA

Ráðinn hefur verið nýr fjármálastjóri að Menntaskólanum á Akureyri. Marsilía Dröfn Sigurðardóttir hefur störf um mánaðamótin maí-júní. Marsilía hefur lokið BS-prófi frá úr ... Lesa »

Skoða meira