Aukatónleikar Hymnodíu

Aukatónleikar Hymnodíu

Mynd frá tónleikum Hymnodíu á Siglufirði. Mynd: Jón Hrólfur Baldursson

Félagarnir í Kammerkórnum Hymnodíu voru ekki aftarlega í röðinni þegar ímyndunarafli og skapandi gáfum var útdeilt eins og margir hafa tekið eftir og nú síðast á svokölluðum Fjölbragðatónleikum en kórinn hefur flakkað um Norðausturland undanfarna daga og haldið skemmtanir á átta stöðum við góða aðsókn og frábæra stemmningu.

Fyrstu tónleikarnir fóru fram í Hofi á Akureyri en uppselt var á þá og þurftu margir frá að hverfa og af því tilefni hefur verið ákveðið að halda lokatónleika í fjölbragðatónleikaferðinni í Pakkhúsinu á Akureyri, Hafnarstræti 19, föstudaginn 15. nóvember.

Aðgangseyrir verður 2000 kr en af hverjum seldum miða renna 700 kr. til uppbyggingar heimilis fyrir munaðarlausar stúlkur í Tansaníu, þar sem stofnaður verður sérstakur tónlistarsjóður.

Margir hafa orðið til að deila upplifun sinni af tónleikunum á Facebook og má lesa brot af þeim umsögnum á Facebookviðburði tónleikanna en einnig skrifaði Jón Hrólfur Baldursson, blaðamaður á siglo.is, skemmtilega grein um upplifun sína af tónleikunum sem lesa má hér en hann tók einnig upp meðfylgjandi myndband.

Hús vikunnar, Strandgata 5 og 7 og lítið eitt um Oddeyrarbrunann

Síðastliðnar vikur hef ég tekið fyrir húsaröðina neðarlega í Strandgötunni en hús númer 7-13 eiga það sameiginlegt að vera byggð 1907 og standa á einskonar brunareit en forverar allra þessara húsa ... Lesa »

Gönguskíðabrautir í Kjarnaskógi troðnar

Í síðustu viku voru gönguskíðabrautir í Kjarnaskógi troðnar og eru nú allar helstu leiðir opnar, þ.e. Trimmbrautin, Þverbrautin, Skógarleiðin og Naustaborgir, alls um 6-7 km. Færið er gott með jöfnum ... Lesa »

Þelamerkurskóli 50 ára

Þelamerkurskóli í Hörgársveit fagnar 50 ára afmæli sínu á þessu starfsári. Af því tilefni verður haldin afmælishátíð með opnu húsi miðvikudaginn 20. nóv. kl. 10:30-18:00. Þá geta gestir og gangandi ... Lesa »

Skíðasvæðið opnað á föstudag

Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli verður opnað á föstudaginn, 22. nóvember, kl. 16. Þetta er viku fyrr en áætlað var að opna svæðið. Fram að opnun verða vetrarkort til sölu á Akureyri Backpackers. Veðurspáin ... Lesa »

Tekur tíma að ná jafnvægi

Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar sem L-listinn lagði fram til kynningar nýverið fær falleinkunn hjá bæjarfulltrúum minnihlutans. Stór orð falla um að rekstur bæjarsjóðs bæði fram og aftur í tímann sé ... Lesa »

Hildur Eir Bolladóttir. Mynd: Guðrún Hrönn

Lífið er bútasaumsteppi

Lífið er bútasaumsteppi. Það er röð atvika, og tímabila sem raðast upp og mynda að lokum heildstætt verk. Inn í það koma litríkar persónur og táknrænar upplifanir, fegurð hins smáa og flækjur sem ... Lesa »

Draumurinn um heilsulind

Náttúrulækningafélag Akureyrar (NLFA) var stofnað í ágúst 1944 sem deild í Náttúrulækningafélagi Íslands. Frá upphafi var tilgangur félagsins að efla þekkingu á heilsusamlegum lifnaðarháttum, fræða og ... Lesa »

Fast þær sóttu sjóinn

Það er afhjúpandi að sjósókn er jafnan kölluð sjómennska. Og það sem starfsheitið afhjúpar helst er sú almenna trú að sjósókn hafi, fyrir ýmsar sakir, eingöngu verið í verkahring karla. Ekki bara það, ... Lesa »

Hvítlauks- og parmesansnúðar

Deigið 150gr smjör, mjúkt 2 1/2 dl súrmjólk 200 gr hveiti 1 tsk lyftiduft 1/4 tsk matarsódi 1 tsk salt Fyllingin 75gr smjör, mjúkt 4 hvítlauksrif, marin 2 msk ferskar ... Lesa »

9 ára Akureyringur hlaut viðurkenningu í pólskri myndlistarkeppni

Nýverið var haldin myndlistarkeppni í tilefni 50. ára afmælis pólsku teiknimyndahetjanna Bolek og Lolek. Það var framleiðslufyrirtæki þáttanna í Póllandi sem stóð fyrir keppninni sem bar heitið Bolek ... Lesa »

Sundrung, sorg og spenna

Rithöfundurinn Árni Þórarinsson hefur fyrir margt löngu skipað sér í flokk bestu glæpasagnahöfunda Íslands en nýjasta bók hans er Glæpurinn ástarsaga. Þó svo að titill verksins beri með sér ... Lesa »

Strengir í Hömrum

Þann 13. október voru haldnir strengjatónleikar í Hömrum. Fram kom strengjakvartett skipaður Zsuzsönnu Bitaty, fiðluleikar, sem kennir við Tónlistarkólana á Dalvík og í Fjallabyggð, Tomazsi ... Lesa »

Smá að utan en stór að innan

Ljóðtímasafn er fjórða ljóðasafn Sigurðar Pálssonar en áður hafa komið út safnritin Ljóðvegasafn, Ljóðnámusafn og Ljóðlínusafn. Eins og í fyrri söfnum Sigurðar inniheldur Ljóðtímasafn þrjár ljóðabækur ... Lesa »

Aldurs- og kynjasamsetning hefur lagast eftir göng

Þegar Héðinsfjarðargöngin voru tekin í notkun haustið 2010 tengdust Ólafsfjörður og Siglufjörður með innanbæjarakstri, jafnframt því sem láglendisleið opnaðist milli Eyjafjarðar og Skagafjarðar sem ... Lesa »

Ragnar sýnir í Populus

Í dag kl. 14.00 opnar Ragnar Hólm sýningu á nýjum vatnslitamyndum í Populus tremula. Heiti sýningarinnar, Dagur með Drottni, vísar til himneskrar fegurðar íslenskrar náttúru. Þetta er sjötta ... Lesa »

Lay Low með útgáfuhljómleika í Hofi

Í kvöld mun Lay Low koma fram á útgáfuhljómleikum í menningarhúsinu Hofi á Akureyri í tilefni útgáfu hljómplötunnar Talking About the Weather sem út kom í gær. Um upphitun á hljómleikunum sér Snorri ... Lesa »

Lokasýning á Sek í samstarfi við Aflið

Á laugardagskvöld er síðasta sýningin á hinu magnaða leikverki Sek eftir Hrafnhildi Hagalín. Í tilefni af 16 daga átaki gegn ofbeldi taka LA og AFLIÐ - samtök gegn kynferðis - og heimilisofbeldi á ... Lesa »

Jón Óðinn Waage

Súkkulaði

Það blasti alltaf við mér þegar ég opnaði skápinn. Tvær plötur innpakkaðar í smjörpappír með bréfi vöfðu utan um. Það er svo auðvelt að renna plötunum út úr bréfinu, losa um smjörpappírinn, brjóta ... Lesa »

Mynd af Facebooksíðu lögreglunnar á Akureyri

Bifreið ekið út í sjó við Drottningarbrautina

Rétt fyrir hádegi í dag fékk lögreglan á Akureyri tilkynningu um að bifreið hefði verið ekið út í sjó við Drottningarbrautina. Þegar lögreglan kom á vettvang var ökumaður ennþá inni í bifreiðinni og ... Lesa »

Gúgglaðu það bara

Annað kvöld verður frumsýndur gamanleikurinn Gúgglaðu það bara í Sjallanum á Akureyri. Þar er sagt frá tveimur karlmönnum um þrítugt sem leita stöðugt að rétta svarinu við lífsgátunni, meðal annars á ... Lesa »

Jón Laxdal sýnir í Flóru

Laugardaginn 16. nóvember kl. 14, á Degi íslenskar tungu, opnar myndlistarmaðurinn Jón Laxdal Halldórsson sýningu með nýjum verkum í Flóru á Akureyri. Jón hefur lengi verið virkur í menningarlífinu ... Lesa »

Lof og last

Lof og last vikunnar

Last fær fólkið í kringum mig sem elur hunda. Svo mælir kennari á Akureyri í bréfi til blaðsins. „Allt í kringum mig býr fólk sem heldur hunda. Þeim er hleypt út á hverjum degi og eru þá geltandi og ... Lesa »

Hvað er að gerast á Akureyri um helgina

Starfsfólk Akureyrarstofu heldur utan um viðburði sem fram fara á Akureyri. Hér má sjá lista yfir viðburði helgarinnar sem birtur er með góðfúslegu leyfi ... Lesa »

Ólga sögð ríkja í Fjallabyggð

Mikil ólga ríkir í Fjallabyggð eftir að bæjarstjórn sagði upp starfsmönnum í hagræðingarskyni í sumar í kjölfar stjórnsýsluúttektar. Kona sem segist nauðbeygð til að flytja frá Ólafsfirði í kjölfar ... Lesa »

Framtíð samvinnuformsins

Kaupfélag Þingeyinga hefur boðað til málþings um framtíð samvinnustarfs á Íslandi og tækifærin sem rekstrarformið getur boðið á ýmsum sviðum samfélagsins. Málþingið verður haldið í Safnahúsinu á ... Lesa »

Skoða meira