Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli verður opnað á föstudaginn, 22. nóvember, kl. 16. Þetta er viku fyrr en áætlað var að opna svæðið. Fram að opnun verða vetrarkort til sölu á Akureyri Backpackers. Veðurspáin fyrir vikuna er hagstæð skíðafólki því frost verður meira og minna alla vikuna en gæti þó farið upp fyrir frostmark á fimmtudag.
Nýjung í verðskrá skíðasvæðisins eru svokölluð Séra Jón kort en þau kosta 9.000 kr. meira en venjuleg vetrarkort fyrir fullorðna en þau má hver sem er nota en hefðbundin vetrarkort má aðeins kaupandi nota. Einnig er vert að benda á sérstök skólakort, fyrir framhalds- og háskólanema en þau kosta aðeins 15.000 kr.
-SBS


