Fjölskipaður Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann í óskilorðsbundið 18 mánaða fangelsi fyrir nauðgun og önnur kynferðisbrot, gegn stúlku sem var 12 og 13 ára gömul þegar brotin áttu sér stað. Hann er talinn hafinn hafa nýtti sér yfirburðastöðu sína gagnvart stúlkunni vegna aldurs-, þroska- og aflsmunar.
Maðurinn var ákærður fyrir að hafa í júní árið 2011 á eigin heimili káfað á brjóstum og kynfærum stúlkunnar og stungið fingri í leggöng hennar. Í mars 2012 framdi hann svipuð brot í heitum potti og nokkru síðar, í stofu sumarbústaðar. Ákærði neitaði sök og krafðist sýknu.
Í málinu kom fram að stúlkubarninu leið eins og hún væri „dauð dúkka“ þegar brotin voru framin. Stúlkan sagðist ekki hafa getað hreyft sig eða hugsað skýrt. Ákærði kvaðst á þessum tíma hafa talið að stúlkan væri sextán eða sautján ára gömul. Drykkja hafði farið fram þegar síðara brotið var framið. Vitni bar í málinu að þegar stúlkan hefði komið fram um morguninn eftir hefði hún öll verið þakin sogblettum á hálsi og væri ljóst að hún hefði sjálf ekki getað skapað þau ummerki.
Trúverðug stúlka
Í niðurstöðu dómsins er þess getið að stúlkan sem bar vitni fyrir dómi hafi þótt trúverðug en gerandinn hafi neitað sök og engin bein vitni hafi verið að brotunum. Þá hröktu vitni þá vörn nauðgarans að trúverðugt væri að hann hefði talið stúlkubarnið sextán eða sautján ára gamla. Svo segir: „Ljóst er að ákærða var leyft að slást í hópinn með fjölskyldunni í sumarbústaðarferð, þrátt fyrir að hafa, að sögn móður hennar og unnusta móðurinnar, viðurkennt að hafa framið kynferðisbrot gegn stúlkunni. Þau báru fyrir dómi að þau hefðu trúað því að hann hefði innilega iðrast þeirra gjörða, sem þau segja að hann hafi viðurkennt fyrir sér, og að stúlkunni stafaði ekki hætta af honum.“
Misnotað traust
Einnig segir: Ákærði hefur brotið gegn ungri stúlku og misnotað það traust sem honum var sýnt sem vini fjölskyldunnar, annars vegar þegar stúlkan þáði heimboð hans og hins vegar þegar honum var leyft að slást í hóp fjölskyldunnar í sumarbústaðnum. Þótt ekki sé sannað í málinu að ákærða hafi mátt vera ljóst hversu illa stúlkan stóð fyrir, þá framdi hann gegn ungri stúlku brot sem getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir hana þegar til lengri tíma er litið.
Margviðurkennt er í dómaframkvæmd að brot sem þessi geti haft alvarleg áhrif á þolanda, jafnvel um langt skeið. „Það hversu illa stúlkan stóð fyrir er líklegt til að gera hér illt verra. Verður ákærði dæmdur til að greiða henni 700.000 krónur ásamt vöxtum eins og greinir í dómsorði,“ segir í dóminum.












