Staða geðheilbrigðismála barna og unglinga á NA-landi var rædd á Alþingi í síðustu viku en enginn barnageðlæknir hefur verið starfandi á svæðinu síðan 1. apríl sl. Brynhildur Pétursdóttir, þingmaður Bjartrar framtíðar, fór fram á sérstaka umræðu á þingi um málið þar sem heilbrigðisráðherra, Kristján Þór Júlíusson, sat fyrir svörum. „Við myndum aldrei láta það líðast að handleggsbrotið barn fengi ekki þjónustu í sinni heimabyggð, það er enginn munur á þessu tvennu,“ sagði Brynhildur á þingi.
Ráðherra svaraði að 6. júlí næstkomandi rynni út umsóknarfrestur um stöður sem væru lausar. Ekki væri hægt að berja fólk til búsetu, þetta væri ekki bara spurning um peninga.
Kristján Möller, þingmaður Samfylkingar, blandaði sér í umræðuna og sagði að með nýju embætti væri Kristján Þór nú ekki lengur hrópandinn á þingi, gagnrýnandi niðurskurð. „Nú hefur hann tækifæri til að uppfylla það sem hann krafðist af okkur.“
Bjarkey Gunnarsdóttir, þingmaður VG, sagði að 20% barna ættu við sálfræði- eða geðvanda að stríða og allt að 10% barna hér á landi þyrftu meðferð. Skólakerfið væri ekki í stakk búið til að sinna börnum með geðrænan vanda. Staðan væri alvarleg.












