Í gær, fimmtudaginn 27. júní hélt skólanefnd Akureyrarbæjar samkomu í Menningarhúsinu Hofi þar sem nemendum, kennurum og starfsmönnum við skóla Akureyrarbæjar voru veittar viðurkenningar fyrir að hafa skarað fram úr á einhvern hátt. Þetta er í fjórða sinn sem skólanefnd stendur fyrir samkomu sem þessari en hún er í samræmi við áherslur í skólastefnu Akureyrarbæjar.
Birgi Helgasyni, tónlistarkennara, var veitt heiðursviðurkenning fyrir að veita nemendum Barnaskóla Akureyrar ómetanlegt tækifæri til söngs og hljóðfæranáms í áraraðir. Í umfjöllun um starf Birgis af þessu tilefni segir: „Grunnskólaganga barna fer fram á miklu mótunarskeiði einstaklingsins og kennurum er ætlað að stuðla að alhliða þroska barna og ungmenna. Listsköpun af ýmsu tagi er hluti skólastarfs og í gegnum tónlist og söng er gott að rækta samstarf, samkennd og gleði. Þessum þáttum sinnti Birgir af alúð en hann starfaði sem tónlistarkennari við Barnaskóla Akureyrar frá árinu 1959 til ársins 1998. Hann stjórnaði Kór Barnaskóla Akureyrar, sem kom fram við ýmis tækifæri, söng við jólaguðþjónustur í Akureyrarkirkju og söng inn á nokkrar hljómplötur.
Birgir stjórnaði ekki aðeins kórnum, heldur samdi hann líka mörg laganna sem sungin voru. Oft voru textarnir sóttir í smiðju samstarfsmanna hans, Tryggva Þorsteinssonar, skólastjóra og Rósbergs G. Snædals, kennara. Birgir samdi einnig lag við skólasöng Barnaskóla Akureyrar, „Rís vor skóli hátt við himin.““
Einnig voru nemendum og kennurum veittar viðurkenningar og nöfn þeirra eru hér fyrir neðan:
Nemendur:
Freyr Jónsson, Naustaskóla, hlaut viðurkenningu fyrir að stuðla að öryggi yngri barna við skólabyrjun.
Ágúst Logi Valgeirsson, Naustaskóla, hlaut viðurkenningu fyrir hjálpsemi og stuðning við yngri nemendur.
Sædís Eiríksdóttir, Naustaskóla, hlaut viðurkenningu fyrir framfarir og þrautseigju í námi og framlag til að bæta skólaanda.
Brynja Rún Guðmundsdóttir, Síðuskóla, hlaut viðurkenningu fyrir dugnað og framfarir í námi.
Dísella Carmen Hermannsdóttir, Hríseyjarskóla, hlaut viðurkenningu fyrir dugnað og hjálpsemi.
Birta María Aðalsteinsdóttir, Giljaskóla, hlaut viðurkenningu fyrir dugnað, metnað og framkomu.
Baldur Bergsveinsson, Giljaskóla, hlaut viðurkenningu fyrir metnað, dugnað og framkomu.
Hafdís Haukdal Níelsdóttir, Brekkuskóla, hlaut viðurkenningu fyrir frábæra frammistöðu.
Gunnar Ingi Lárusson, Glerárskóla, hlaut viðurkenningu fyrir dugnað og eljusemi.
Starfsmenn og verkefni:
Reynir Hjartarson, Hlíðarskóla, hlaut viðurkenningu fyrir verkefnið „Flugið“.
Magnús Jón Magnússon, Naustaskóla, hlaut viðurkenningu fyrir „First lego“ tækni- og hönnunarkeppni grunnskólabarna.
Anna Rebekka Hermannsdóttir, Glerárskóla, hlaut viðurkenningu fyrir útikennslu.
Ásta Magnúsdóttir, Giljaskóla, hlaut viðurkenningu fyrir tónlistarkennslu.
Starfsfólk Iðavallar, Leikskólanum Iðavelli, hlaut viðurkenningu fyrir frumkvæði við gerð nýrrar skólanámskrár.
Guðrún Óðinsdóttir, Leikskólanum Hulduheimum, hlaut viðurkenningu fyrir að vera starfsfólki ómetanleg fyrirmynd, jákvæð og lausnamiðuð.
Hólmfríður B. Pétursdóttir, Margrét Kristinsdóttir og Þorvaldur Þorvaldsson, Leikskólanum Lundarseli, hlutu viðurkenningu fyrir teymiskennslu – deildarstjórn












