Kristinn Már Ársælsson, fjölmiðlafulltrúi hjá Umhverfissfofnun, segir að Umhverfisstofnun hafi ekki til meðferðar mál til ákvörðunartöku sem varði Geo Travel ehf. Ekki hafi komið til þess að stofnun leggi mat á slíkt mál. Að öðru leyti vísi hann til laga um trúnað hvað varðar einstaka starfsmenn og vanhæfnisskyldur.
Gísli Rafn Jónsson sem rekur ferðaþjónustufyrirtæki sagði í Akureyri vikublaði í síðustu viku að hann teldi það rýra trúverðugleika stofnunarinnar að starfsmaður UST, væri jafnframt eigandi ferðaþjónustu sem fór ferð að Öskju á dögunum þrátt fyrir lokun Vegagerðarinnar. Gagnrýnt hefur verið að starfsmaðurinn starfi við að leiðbeina öðrum um hvernig umgangast skuli náttúru og vegi Íslands en fyrirtæki á vegum starfsmannsins brjóti sjálft lög og réttlæti brot með geðþótta.
Eiginmaður starfsmanns Umhverfisstofnunar, harmar fréttaflutning og vill koma því á framfæri að þótt starfsmenn Geo Travel hafi látið lögreglu vita af utanvegaakstri í umdeildri ferð sinni hafi þeir engan kært eins og mátt hafi lesa í Akureyri vikublaði.












