Halldór Jónsson hefur verið skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja frá 1. júlí n.k., þetta kemur fram á vef Sjúkrahússins á Akureyri en Halldór starfaði þar frá árinu 1984 þar sem hann gegndi fyrst stöðu skrifstofustjóra, síðar framkvæmdastjóra og lengst af stöðu forstjóra, að undanskildum árunum 1990-1994 þegar hann var bæjarstjóri á Akureyri. Frá 2011 hefur Halldór verið í leyfi frá Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Staða forstjóra við Sjúkrahúsið á Akureyri er því laus og verður auglýst laus til umsóknar. Bjarni Jónasson, sem gegnt hefur starfi forstjóra í fjarveru Halldórs mun gegna starfinu þar til skipað verður í stöðuna, sem væntanlega verður í lok ágúst n.k.












