Borið hefur á því að Akureyringar hafi haft samband við blaðið vegna hljóðlausra rafmagnshjól sem börn í bænum ferðast á um allan bæ í sumarblíðunni. Kona, íbúi á Akureyri, telur að gangandi fólk og börn að leik séu í stórhættu vegna þessa þegar verst lætur.
„Ég hef þann leiða vana að líta útum glugga af og til auk þess að fara í gönguferðir í nágrenninu. Ég sé börn á svona hjólum krussa milli leiktækja á lokuðum leikvelli svo krakkakrílin sem þar eru að leik þyrlast upp eins hænsnahópur þegar þetta birtist.“
Konan segist geta nefnt mörg dæmi um að börn og eldri borgarar hafi hrokkið við vegna þessara ferðalaga auk slysahættu. Fólk tali um þessi hjól sem hina mestu óværu, ekki síst eldra fólk á röltinu úti.
Dæmi um stórslasað fólk
Akureyri vikublað fjallaði í fyrrasumar um þessi umdeildu samgöngutæki sem vissulega gleðja marga. Þá sagði Herdís Storgaard, slysavarnafulltrúi hjá Forvarnahúsinu, að dæmi væru um að fólk hefði stórslasast vegna hljóðlausu hjólanna. Herdís vill að öll ökutæki verði tekin burt af gangstéttum, venjuleg reiðhjól líka. „Ef 90 kg maður hjólar á 40 til 50 km hraða þá erum við að tala um meira en tonn í þyngd sem lendir á manni. Ég held reyndar að við náum aldrei hjólreiðamönnum af gangstéttum en það þarf að fara fram umræða um þetta,“ sagði Herdís þegar Akureyri vikublað vann að frétt um sambærilegt mál síðastliðð sumar.
Umferðarstofu að kenna?
Þá sagði Herdís að akstur vespa, rafmagnsreiðhjóla, „ellinaðra“ (vagnar fyrir eldri borgara) og fleiri slíkra tækja væru í raun Umferðarstofu og umferðaröryggisfólki að kenna. „Það var Reykjavíkurborg sem fyrst heimilaði reiðhjól á göngustígum í kringum 1995. Þá voru mjög fáir sem hjóluðu en þetta hefur fest sig í sessi og síðan hefur allt þetta rafknúna komið inn á síðustu árum. Þetta er nu orðið svo í úthverfum í Reykjavík að eldra fólk fer ekki lengur út að ganga,“ sagði Herdís.
Hún gekk svo langt að staðhæfa að hljóðlausa umferðin hefði orðið til þess í einhverjum tilvikum að eldra fólk væri hreinlega hætt að þora út að ganga.












