Barokkhátíðin á Hólum hefst í dag og stendur til 30. júní. Mikið stendur til því þetta litla áhugamannafélag, Barrokksmiðja Hólastiftis, hefur fengið tveggja og hálfrar milljónar króna hljóðfæri sem smíðað var sérstaklega fyrir hópinn á Ítalíu. „Þetta er handsmíðaður gripur, stórglæsilegur, og einstæður hérlendis. Hljóðfærið er sniðið að endurreisnar- og barokktónlist. Þetta er lítið hljóðfæri af sembalfjölskyldunni, kallað virginall en stundum líka spinet. Það er stillt í svokallaðri meantone-stillingu en ekki jafnstillt eins og nútímapíanó. Það þýðir að ekki er hægt að spila allar tóntegundir en á móti kemur að allar þríundir eru tandurhreinar þannig að hljómurinn verður himneskur. Auk þess gerir þetta að verkum að hver tóntegund hefur sérstakan hljóm og karakter,“ segir Pétur Halldórsson sem fer fyrir barrokkhópnum. Til að auka möguleikana eru líka á hljóðfærinu aukanótur. „Þar sem venjulega er dís og es er snertillinn tvískiptur og eins með gís og as,“ segir Pétur.
Á hátíðinni mun sænski semballeikarinn Lars Sjöstedt, aðalráðgjafi hópsins við val á hljóðfæri, hljóðfærasmið og útfærslu hljóðfærisins, vígja gripinn góða. „Með honum kemur kona hans sem er fiðluleikari frá Úkraínu og við fáum líka til okkar kvartett frá Finnlandi, skipaðan sprenglærðu tónlistarfólki, þremur Finnum og einum Hvít-Rússa. Svo fáum við ungan og efnilegan baritónsöngvara frá Hollandi, Jón Þorsteinsson kennir söng, Ingibjörg Björnsdóttir barokkdans, Margrét Eggertsdóttir bókmenntafræðingur heldur fyrirlestur og fleira og fleira,“ segir Pétur.
Barokksmiðja Hólastiftis var stofnuð árið 2009 til þess að efla áhuga Íslendinga á barokktónlist og öðrum listum barokktímans. Fyrsta Barokkhátíðin á Hólum var haldin sama sumar og síðan hefur hátíðin verið haldin um og fyrir síðustu helgi júnímánaðar ár hvert. Barokkhátíðin á Hólum er hugsuð sem vinnusmiðja þar sem fólk kemur saman til að læra og skapa. Þarna hittast lærðir og leikir, æfa saman í stærri og smærri hópum og starfandi er hljómsveit hátíðarinnar sem kemur meðal annars fram á glæsilegum lokatónleikum hátíðarinnar.












