Heyrst hefur að listagúru Íslands, sjálfur Guðmundur Oddur Magnússon, prófessor Listaháskólans, eða Goddur eins og hann kallar sjálfan sig, hafi hreinlega verið í skýjunum við opnun sýningar Aðalheiðar Eysteinsdóttur í Listagilinu um helgina. Goddur hljóp um milli sýningarsala með kvikmyndatökumann teipaðan við sig. Sá dokúmenteraði hverja hreyfingu og svipbrigði Godds, og var gúrúrinn tilkomumikill þar sem hann skartaði höfuðfati forláta sem tengist sýningunni. „Ég er svarti sauðurinn,“ sagði Goddur og hló. Nú er bara að sjá hvort afrakstri sýningarinnar verði gerð skil í Djöflaeyjunni síðar…
Heyrst hefur að leiksýning Jóns Gunnars Þórðarsonar um hundinn Lúkas og þau eftirmál öll hafi heppnast vel um síðustu helgi í Rýminu. Hefur einnig heyrst að sá fréttamaður sem e.t.v. átti einn stærsta þáttinn í að málið varð eins og opinbert og raun bar vitni, með ýmsum og misömurlegum eftirmálum, hafi ekki verið meðal frumsýningargesta. Hefur heyrst að allir blaðamenn landsins ættu að hafa það á stefnuskrá sinni að horfast í augu við samfélagsádeiluna, hinn kolsvarta húmor verksins…
Heyrst hefur að Hollywood tónskáldið Atli Örvarsson sé mættur til nokkurra vikna dvalar í sínum elskaða heimabæ, Akureyri. Hefur heyrst að kappinn sá hafi verið orðinn langeygður eftir góðu fríi með fjölskyldu sinni og ekki sjái hann betri kost en að verja fríinu í hinu bjarta norðri. Ekki hafa veðurguðirnir svikið hann til þessa. Atli hefur verið ötull í samningu kvikmyndatónlistar fyrir ýmsar stórmyndir undanfarið og ekki skemmir fyrir að Þórhildur Örvarsdóttir, systir hans, hefur sungið í sumum þeirra eins og Akureyri vikublað hefur greint frá. Þá má sem dæmi heyra tónlist Atla vikulega í sjónvarpsþáttunum Rescue Team sem Sjónvarpið sýnir um þessar mundir…












