Sigurður Guðmundsson, bæjarfulltrúi A-listans á Akureyri sem jafnframt er kunnur fyrir ýmis viðskiptaleg umsvif, segir í opnuviðtali við Akureyri vikublað í dag að ýmis og ólík störf hans hafi tekið á að undanförnu. Álagið hafi verið gífurlegt á fjölskylduna.
„Oft á tíðum sá maður börnin sín sofandi þegar maður fór út á morgnana og þau voru kannski sofnuð þegar heim var komið. Maður týndist kannski í sjálfum sér og þeim verkefnum sem maður sinnti. Sífellt fleiri verkefni bætast við og þá koma brestir. Ég og fyrrum konan mín slitum samvistir fyrr í vetur og fjölskyldan hefur verið að jafna sig undanfarna mánuði,“ segir Sigurður.
Auk þess að reka Víking búðirnar og hafa verið heiðraður af reykvískum borgaryfirvöldum fyrir skömmu segir Sigurður í viðtalinu að kaffihúsið í Lystigarðinum á Akureyri hefði aldrei risið nema vegna framtaks þeirra Njáls Trausta Friðbertssonar. Sigurður sér mikla möguleika í ferðaþjónustu en varar hins vegar við fyrirætlunum Huang Nubo á Grímsstöðum á Fjöllum og segir spurningarmerki hve langt atvinnuþróunarfélög eigi að ganga í því máli.
„Stærsta verkefni mitt á næstu misserum er að vera börnum mínum sá faðir sem þau eiga skilið. Að eiga með þeim meiri tíma og minnka við mig vinnuna. Þá er mikilvægt fyrir mig sjálfan að vera bjartsýnn á framtíðina og reyna að gera enn betur í öllu sem ég tek mér fyrir hendur,“ segir Sigurður.
Sjá bls. 12-13 í blaði vikunnar










