Fundi Háskólaráðs Háskólans á Akureyri lauk fyrir skemmstu. Þar kynnti rektor HA ákvörðun sem lengi hefur verið beðið, um hver fær stöðu forseta Hug- og félagsvísindadeildar. Blaðið náði tali af einum fulltrúa Háskólaráðs en fulltrúinn sagði algjöran trúnað ríkja um niðurstöðuna, fyrst yrði að ræða við fólk. Fulltrúinn sagðist ekki geta svarað hvenær niðurstaðan yrði gerð opinber.
Valið stendur milli Ólínu Þorvarðardóttur, Sigrúnar Stefánsdóttur og Rögnvalds Ingþórssonar. Ólína varð hlutskörpust í kosningu meðal starfsmanna sviðsins.
-BÞ




















