Rektor Háskólans á Akureyri hefur ráðið Sigrúnu Stefánsdóttur sem nýjan forseta Hug- og félagsvísindasviðs Háskólans á Akureyri. Með því gengur rektor gegn vilja fræðasviðsins en rök hans eru að Sigrún uppfylli best skilyrði auglýsingarinnar.
Í rökstuðningi vegna ráðningarinnar segir: „Sigrún hefur mikla og samfellda kennslureynslu úr háskóla, hún er með dósentshæfi og hefur því mest akademískt hæfi umsækjenda. Hún þekkir vel til flestra þátta sem eru undirstaða góðrar háskólakennslu hvort sem er í staðar- eða fjarnámi. Sigrún hefur doktorspróf í fagi sem kennt er við HA og hefur reynslu af störfum tengdum viðfangsefnum á fræðasviðinu. Sigrún hefur að mati dómnefndar áberandi mesta reynslu af stjórnun og rekstri í háskólastarfi. Hún hefur einnig jafngóða eða meiri reynslu en aðrir umsækjendur í leiðtoga- og stjórnunarhlutverki tengdu háskólastarfsemi. Í umsókn og í viðtölum kemur fram skýr framtíðarsýn hennar varðandi starfið“.
-BÞ


