Rannsóknir sjálfstætt starfandi hóps um bætt jafnrétti sýna að ofbeldi fer vaxandi í kynlífi ungs fólks. Hópurinn sem nefnist Barningur kennir klámvæðingunni um. Ekki hjálpi til að umræða um kynlíf ungs fólks sé tabú af því að flestir vilji ekki vita af eða ræða kynlíf þess hóps.
“Það sem okkur hefur fundist merkilegt í okkar vinnu með klámvæðingu í kynlífi er að ástandið er miklu svæsnara en okkur hafði komið til hugar,” segja aðstandendur Barnings.
Hópurinn hefur skráð reynslusögur ungmenna og bendir margt til að hugmyndir, komnar frá klámmyndum ýti undir að hópkynlíf sé sjálfsagt mál og eftirsóknarvert. Stelpur séu undir mikilli pressu að gera hluti sem þeim kunni að þykja óþægilegir. “Kyrkingar eru líka ótrúlega algengar,” segja talsmenn Barnings.
“Ofbeldiskynlíf er nátengt gildismati klámvæðingarinnar. Þar gildir hve kaldur þú ert og hve langt þú getur gengið við að ögra líkamanum. Þá er annar aðilinn oft látinn taka þátt í einhverju sem hann eða hún hefur ekki samþykkt – en þorir ekki að mótmæla.” Sjá nánar hér.
-BÞ



















