Enn hefur ákvörðun verið frestað um ráðningu í stöðu sviðsforseta við hug- og félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri. Þetta var samkvæmt heimildum blaðsins tilkynnt á fundi háskólaráðs í dag. Málið þykir afar vandræðalegt fyrir skólann ekki síst vegna þess hversu langan tíma ráðningarferlið hefur staðið yfir en Ólína Þorvarðardóttir, einn umsækjenda, um stöðuna hefur bent á að ráðningarferlið sé að nálgast það að hafa staðið yfir sem svarar til fjórðungs ráðningartímans en ráðningin er til tveggja ára.
-SBS





