Sigrún Stefánsdóttir fær stöðu forseta Hug- og félagsvísindasviðs Háskólans á Akureyri. Með því gengur rektor gegn vilja fræðasviðsins en rök hans eru að Sigrún uppfylli best skilyrði auglýsingarinnar.
„Ég er náttúrlega afskaplega ánægð og þakklát og hlakka mikið til að vinna með þessum háskóla sem ég hef tengst í mörg ár,“ sagði Sigrún þegar niðurstaða var kunn.
Um áherslur segir hún að vinna verði að því að gera háskólann enn frekar aðlaðandi fyrir nýja nemendur. „Við þurfum að gera þar átak, það hefur dregið mikið úr aðsókn í kennaranámið sem dæmi, eins finnst mér við þurfa að leggja áherslu á að auka sýnileika þess rannsóknarstarfs sem unnið er innan háskólans.“
Dregist hefur mjög að ráða í stöðuna eftir að starfið var auglýst og eru deildar meiningar um hvort rektori var stætt að fara gegn vilja starfsmanna en Ólína Þorvarðardóttir fékk í kosningu flest atkvæði um forsetastöðuna. „Ég kýs að tjá mig ekkert um umræðuna, ég er ánægð með niðurstöðuna en þetta ferli hefur tekið langan tíma og verið öllum erfitt. Ég er fegin að þessu er lokið. Nú get ég haldið áfram að pakka niður, ég á tvö heimili og það verður gaman að vera meira en minna á Norðurlandinu,“ segir Sigrún Stefánsdóttir, nýr forseti.
-BÞ




















