Ólína Þorvarðardóttir
Ólína Þorvarðardóttir fékk í dag flest atkvæði um stöðu sem sviðsforseti Hug- og félagsvísindadeildar Háskólans á Akureyri. Hún atti kappi við m.a. Sigrúnu Stefánsdóttur fyrrum dagskrárstjóra Rúv. Athygli vakti að Sigrún datt út strax í fyrri umferð kosningar en margir töldu hana eiga góða möguleika á forsetastöðunni. Kosið var svo aftur milli þeirra sem fengu flest atkvæði, Rögnvaldar Ingþórssonar og Ólínu. Ólína marði Rögnvald með einu atkvæði, hún fékk 20 en Rögnvaldur 19. Nokkrir seðlar voru auðir.
Það bíður nú rektors Háskólans á Akureyri að skipa formlega í stöðuna en samkvæmt heimildum blaðsins eru ekki fordæmi fyrir að rektor hunsi vilja starfsmanna vísindasviða eins og hann birtist í kosningu. Verður því að teljast líklegt að nýr starfsvettvangur hafi opnast á Akureyri fyrir Ólínu en hún var þingmaður Samfylkingar síðasta kjörtímabil.
-BÞ





















