Akureyringur hefur verið dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi eftir að hann stal tveimur vodkaflöskum í vínbúð ÁTVR á Akureyri. Fyrra tilvikið var föstudaginn 24. maí þessa árs þegar hann stal einni Smirnoff flösku 500 ml, að verðmæti 3.790 krónur. Fimm dögum síðar framdi hann sama brot, ásældist aftur Smirnoff flöskuna. Tveimur dögum síðar nappaði hann svo enn flösku sömu gerðar en þá greip hin svokallaða réttvísi inn í athæfi mannsins.
Fyrir dómi viðurkenndi ákærði skýlaust brot sín. Í dóminum segir að til þess beri að líta að afrakstur brota ákærða hafi verið harla rýr, en að auki greiddi hann að fullar skaðbætur til ÁTVR fljótlega eftir að kæra um athæfi hans barst lögreglu.
„Þá virðist að undanförnu hafa orðið viðhorfsbreyting hjá ákærða, en hann er nú í fullri vinnu og sækir reglulega AA-fundi,“ segir Ólafur Ólafsson dómari.
-BÞ





















