Á morgun, fyrsta vetrardag, opna hjónin Júlíus Júlíusson og Gréta Arngrímsdóttir nýtt kaffihús og Bistro í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík. Frá þessu segir á vefnum veitingageirinn.is.
Fastur opnunartími staðarins, sem bera mun nafnið Þula, er þriðjudaga til föstudaga frá klukkan 11 til 18, laugardaga 11 til 17, sunnudaga 12 til 17 en lokað verður á mánudögum. „Við verðum með mat í hádeginu virka daga og einnig með ýmis sérkvöld í mat og viðburðum sem verða auglýstir nánar í hvert skipti,“ segir Júlíus og segur kaffihúsið alltaf verða opið þegar viðburðir séu í menningarhúsinu en innan Þulu er bókasafnið í húsinu og fjölmenningarsalur. „Það er upplagt að grípa bók og setjast niður á Þulu. Þar er einnig að finna flest tímarit, dagblöð dagsins og frítt netsamband,“ segir Júlli. Sælkeravörur Áhugamannsins verða til sölu í Þulu, sælkerakrukkur og gjafapakkningar og fleira.
Opnunardaginn verður opið frá kl 11 og fram á kvöld. Í tilefni opnunarinnar er boðið upp á heilsu fræðslufyrirlestur í samvinnu við Egil Þorsteinsson Kiropraktor, fyrirlesturinn hefst kl 13.00, en þegar líður á daginn munu vinir setjast við flygilinn. Frá kl. 21-22:30 spilar og syngur trúbadorinn Aron Óskarsson laufleikandi létt fyrir gesti Þulu.
Í Bergi eru glerskápar þar sem að Byggðasafnið Hvoll sýnir áhugaverða muni. Íris safnstjóri Hvols hefur sett upp nýja sýningu með hlutum tengdum eldhúsi og mat og geta gestir skoðað möppu með upplýsingum um hlutina og eigendur þeirra.
-SBS




















