Niðurstöðutölur rekstrarreiknings Búseta fyrir árið 2012 sýna rekstrarhagnað upp á 194 milljónir.Samkvæmt tilkynningu frá Búsetu þýðir þetta að teknu tilliti til matsbreytinga fasteigna og fjármagnsliða að hagnaður ársins sé 1.664 milljónir.
„Með þessu uppgjöri kemur fram viðsnúningur á efnahag félagsins til hins betra þar sem leiðréttingar gengisbundins lánasamnings og afskrift á eftirstöðvum koma fram í lækkun skulda og tilsvarandi tekjufærslu,“ segir í tilkynningunni.
Aðalfundur Búseta á Norðurlandi, haldinn 21.október 2013 skorar á ríkisstjórn og Alþingi að tryggja að markmið um sanngjarna leiðréttingu verðtryggðra lána nái fram að ganga sem fyrst. „Fundurinn treystir því að sambærilegar leiðréttingar nái til húsnæðissamvinnufélaganna og sjálfseignarfélaga sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni eins og til einstaklinga í eigin íbúðum.“
Kemur fram að mikil eftirspurn sé eftir hagkvæmu húsnæði á Akureyri um þessar mundir.
-BÞ




















