„Ég er núna að meta réttarstöðu mína, það er hvort ég muni snúa mér til dómstóla - en ákvörðun um slíkt get ég ekki tekið fyrr en ég hef séð öll gögn málsins,“ segir Ólína Þorvarðardóttir.
Í dag varð ljóst að Ólína fær ekki stöðu sviðsforseta innan Háskólans á Akureyri. Hún er afar ósátt við málalok, ekki síst þar sem starfsmenn fræðasviðs hug- og félagasvísindasviðs HA greiddu því atkvæði að hún hlyti stöðuna.
Ólína segist ekki hafa fengið umbeðin gögn í hendur þrátt fyrir ítrekaðar óskir þar um. „En varðandi stjórnsýsluþáttinn í þessu þá hef ég þegar snúið mér til umboðsmanns Alþingis - mér finnst í öllu falli sjálfsagt og eðlilegt að það embætti taki afstöðu til þessara vinnubragða, hvað sem öðru líður. Opinberir starfsmenn, ekki síst innan háskólageirans, eiga talsvert undir því að tekin verði afstaða til þess hvort þetta eru tæk vinnubrögð.“
-BÞ



















