Framkvæmdir eru hafnar við hundasvæði við Norðurslóð, nálægt háskólasvæðinu á Akureyri. Gert er ráð fyrir að kostnaður við mann/hundvirkið verði um fimm milljónir króna. Oddur Helgi Halldórsson, formaður framkvæmdaráðs, segist aðspurður aðeins hafa heyrt eina mótmælarödd vegna staðsetningarinnar en fjöldi hundaeigenda hafi lýst ánægju.
„Þetta er eitt af þeim verkefnum, sem við ákváðum að kæmi úr afmælisgjöfinni. Um forgangsröðun eru alltaf skiptar skoðanir, en þær komu ekki upp í framkvæmdaráði í þessu tilfelli.„
Oddur Helgi segir að hundasvæðið hafi verið lengi á döfinni. „Okkur var bent á þetta svæði, ásamt mörgum öðrum. Fullt samráð var haft við hundaeigendur. Svæðið er miðsvæðis og var í raun ónotað. Framtíðar notkun þess er tengd uppbyggingu háskólasvæðisins, enda er þetta sett þarna niður til bráðabirgða. Við sjáum ekki aðra uppbyggingu þarna næstu 5-10 árin,“ segir Oddur Helgi.
Girðing verður umhverfis svæðið en þegar svæðið verður fært mun girðingin einfaldlega tekin upp og sett upp annars staðar að sögn Odds Helga.
Íbúi sem hafði samband við blaðið lýsti vonbrigðum með staðsetninguna vegna sjómengunar af girðingunni.
-BÞ





















